Frá og með 1. janúar 2017 fluttist úrvinnsla húsnæðisbóta til Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun vinnur húsnæðisbæturnar rafrænt og er því ekki þörf á að skila inn frumriti húsaleigusamnings líkt og áður var. Hafnarfjarðarbær bendir leigjendum á að sækja frumrit húsaleigusamninga til þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6 til eigin varðveislu.
Flokkur: Fréttir
Skipulagsbreyting – Selhella 1
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Selhrauns norður vegna lóðarinnar Selhella 1, Hafnarfirði. Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 06.09.2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar við Selhellu 1 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Selhrauns norður vegna mislægra gatnamóta Krýsuvíkurvegar og Reykjanesbrautar. […]
Vilt þú slást í hópinn næsta skólaár?
Við viljum bæta við okkur frábæru samstarfsfólki og auglýsum fjölbreytt störf í boði fyrir fólk á öllum aldri með margvíslega menntun og reynslu í grunnskólum Hafnarfjarðar skólaárið 2017-2018. Upplýsingar um laus störf eru á radningar.hafnarfjordur.is. Starfsfólk vantar í eftirfarandi skóla. Grunnskóli í Skarðshlíð Hraunvallaskóli Hvaleyrarskóli Lækjarskóli Setbergsskóli Víðistaðaskóli Öldutúnsskóli
Útboð – bygging hjúkrunarheimilis
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum verktaka í byggingu hjúkrunarheimilis við Sólvang í Hafnarfirði. Verkefnið sem hér er boðið út er bygging hjúkrunarheimilis, 3ja hæða bygging ásamt kjallara undir hluta hússins. Auk þess eru tengigangar sem tengja nýbyggingu við eldra húsnæði Sólvangs. Stærð hússins er um 3.900 m2. Verkefnið innifelur uppsteypu hússins ásamt fullnaðarfrágangi að utan sem […]
Lokun í Ásvallalaug um helgina
Íbúar og góðir gestir takið eftir! Ásvallalaug verður lokuð allan daginn laugardaginn 18. mars vegna sundmóts. Sunnudaginn 19. mars verður lokað til kl. 13 og opið fyrir almenning frá kl. 13-17. Þökkum sýndan skilning!
Útboð – viðgerð á þökum
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í viðgerð á þökum á eftirtöldum mannvirkjum. Álfaskeið 64 C Álfaskeið 64 D Leikskólinn Norðurberg Tónkvísl Víðistaðaskóli – íþróttahús Áætlaðir heildarfermetrar eru um 1080 m2 Hver verkstaður hefur sína verklokadagsetningu en öll verkin eiga að vera búin fyrir 10. ágúst 2017. Útboðsgögn eru seld hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu […]
Útboð – tilboð í málun
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í málun á eftirtöldum mannvirkjum. Engidalsskóli Hvaleyrarskóli Setbergsskóli Öldutúnsskóli Leikskólinn Hlíðarendi Leikskólinn […]
Sögur og ljóð í sundi
Það er hugguleg tilhugsun að liggja í lauginni og lesa. Þessa vikuna liggja frammi í sundlaugum Hafnarfjarðarbæjar ljóð og smásögur eftir nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar. Ljóðin og sögurnar eru settar upp í laugunum í tilefni af Bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafnarfirði sem nú stendur yfir. Höfundar myndskreyttra ljóða eru nemendur í 5. bekkjum grunnskóla Hafnarfjarðar. […]
Börn hjálpa börnum
Nemendur úr 5. bekk Áslandsskóla taka þátt í söfnuninni BÖRN HJÁLPA BÖRNUM 2017, árlegu söfnunarátaki ABC barnahjálpar í samstarfi við grunnskóla landsins. Forseti Íslands, Hr Guðni Th. Jóhannesson, setti söfnunina formlega af stað í skólanum í dag. Verkefnið tengist með beinum hætti hornstoðum Áslandsskóla og er til þess fallið að efla skilning og virðingu fyrir alheimssamfélaginu. […]
Viðburða- og verkefnastyrkir
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði menningar og lista í Hafnarfirði. Umsóknum skal skilað inn með rafrænum hætti fyrir 15. mars 2017. Hver umsókn skal aðeins innihalda eitt verkefni. Einu sinni á ári auglýsir menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar eftir menningarstyrkjum til menningarstarfsemi til eflingar á hafnfirsku […]