Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í að rífa bygginguna Dverg við Lækjargötu 2 í Hafnarfirði. Byggingin er 3ja hæða steinhús, samtals um 2.500 m2 að flatarmáli. Verkefnið felst í að rífa bygginguna, flokka byggingarefni og farga. Verktími er frá 10. júní- 21. júlí 2017. Þeir sem óska eftir að fá send útboðsgögn skulu senda beiðni um […]
Flokkur: Fréttir
Vinadreki á Drekavöllum
Risastór vinadreki liðaðist um Drekavelli í Hafnarfirði nú í morgun og samanstóð drekinn af hátt í 1200 nemendum, leikskólabörnum og starfsmönnum við Hraunvallaskóla. Vinadrekinn er lokahnykkur Hraunvallaleika sem haldnir hafa verið við skólann síðustu þrjá dagana. Leikarnir tengja saman nemendur á öllum aldri og hafa þann góða tilgang að efla samskipti og góðan skólaanda. […]
Nýtt deiliskipulag fyrir Kaldársel, Kaldárbotna, Gjárnar og Ásvallabraut
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Kaldársel, Kaldárbotnar og Gjárnar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 23.11.16 að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Kaldársel, Kaldárbotna og Gjárnar skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið afmarkast í norðri af náttúruvættinu Kaldárhraun og Gjárnar og liggur að deiliskipulagi Sléttuhlíðar auk nær það yfir brunnsvæði vatnsverndar í Kaldárbotnum. Alls […]
Sérkennsluráðgjafi leikskóla óskast til starfa
Hafnarfjarðarkaupstaður auglýsir eftir sérkennsluráðgjafa leikskóla hjá fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnarfjarðarbæjar. Sérkennsluráðgjafi leikskóla vinnur að stuðningi og ráðgjöf við foreldra, kennara og starfsfólk leikskóla vegna barna sem þurfa sérstakan stuðning. Sérkennsluráðgjafi vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk fræðslu- og frístundaþjónustu og opinberar stofnanir sem tengjast málefnum barna með sérþarfir. Sérkennsluráðgjafi veitir einnig ráðgjöf við börn sem […]
Tilkynning vegna breytinga – Kvistavellir 63 og 65
Tilkynning vegna breytinga á deiliskipulagi við Kvistavelli 63 og 65, Vellir 5. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 29.3.2017 tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðanna Kvistavellir 63-65 og að málinu verði lokið skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að lóðirnar Kvistavellir 63 og Kvistavellir 65 eru sameinaðar í eina […]
Grenndarkynning – Klettahraun 23
Grenndarkynning – Klettahraun 23. Breyting vegna byggingarleyfisumsóknar Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar þann 08.03.2017, var tekið fyrir erindi eigenda Klettahrauns 23, Magnúsar Inga Óskarssonar og Signýjar Jóhannesdóttur um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðra breytinga á húsi þeirra. Á fundinum var samþykkt að grenndarkynna meðfylgjandi tillögu THG arkitekta að breytingum á Klettahrauni 23, Hafnarfirði, dags. 07.03.2017. Erindið er […]
Samkeppni um heiti á skóla
Fræðsluráð Hafnarfjarðar samþykkti á 367. fundi sínum þann 8. mars 2017 að standa fyrir nafnasamkeppni á nýjum skóla í Skarðshlíð inn af Völlunum í Hafnarfirði. Skólinn í Skarðshlíð mun verða starfræktur í nýrri skólabyggingu sem hafið verður að reisa á árinu 2017 og hann verður tekinn í notkun í áföngum árin 2018-2020. Í skólanum verður […]
Menningardagar í Áslandsskóla
Dagana 3. – 6. apríl eru menningardagar í Áslandsskóla. Þá er skólastarfið brotið upp á margvíslegan hátt. Söngleikir og tónlist er þema menningardaganna að þessu sinni, nemendum er skipt í hópa og unnið verður með söngleiki & tónlist á fjölbreyttan hátt. Mánudag, þriðjudag og miðvikudag stendur skóladagur yfir frá 8.10 – 13.10. Fimmtudaginn 6. apríl er […]
Fimmtán mánaða innritunaraldur leikskólabarna
Hafnarfjarðarbær hefur undanfarin ár unnið jafnt og þétt að lækkun innritunaraldurs á leikskóla svo börn hefji leikskóladvöl árið sem þau verða 18 mánaða. Í janúar 2017 bauð Hafnarfjarðarbær 16 og 17 mánaða gömlum börnum, fæddum í apríl og maí 2015, dvöl í leikskóla. Frá og með hausti 2017 verður börnum sem eru fædd frá janúar […]
Opnun tilboða í byggingu hjúkrunarheimilis við Sólvang
Í gær þriðjudaginn 28. mars voru opnuð tilboð í byggingu hjúkrunarheimilis við Sólvang í Hafnarfirði. Tilboðin voru opnuð kl. 11 í húsnæði umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2. Um miðjan mars óskaði Hafnarfjarðarbær eftir tilboðum verktaka í byggingu hjúkrunarheimilis við Sólvang í Hafnarfirði, 3ja hæða byggingu ásamt kjallara undir hluta hússins auk tengiganga sem […]