Flokkur: Fréttir

Hafnarfjarðarbær vill fá fullt forræði yfir St. Jósefsspítala

Á fundi bæjarstjórnar sem nú stendur yfir voru málefni St. Jósefsspítala til umræðu. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að  fela bæjarstjóra  að taka upp viðræður við ríkið sem miði að því að bærinn fái fullt forræði yfir húsnæði St. Jósefsspítala. Fasteignir ríkisins auglýstu húseignirnar Suðurgötu 41 og 44 til sölu. Ekki bárust viðunandi kauptilboð í eignirnar.  Í […]

Nýr leikskóli á Völlunum

Skipulags- og byggingarráð hefur samþykkt að hefja byggingu á nýjum 4 deilda leikskóla við Bjarkavelli. Leikskólinn verður byggður samkvæmt teikningum Sigurlaugar Sigurjónsdóttur.  Framkvæmdir við skólann hefjast síðar á þessu ári og stefnt er að því að hann verði tekinn í notkun 2016 Á Völlunum búa nú hátt í 5000 manns og bætir leikskólinn úr brýnni […]

Bæjarstjórnarfundur

Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 4.febrúar 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.

Haldið áfram með uppbyggingu hjúkrunarheimila

Fjölskylduráð Hafnarfjarðar hefur falið bæjarstjóra að taka upp viðræður við velferðarráðuneytið um endurskoðun fyrirliggjandi samnings frá 2010 um byggingu nýs hjúkrunarheimilis í bænum í ljósi breytinga sem gerðar hafa verið á sambærilegum samningum á þeim tíma sem liðinn er frá undirritun. Haustið 2014 gerði Capacent að beiðni bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samanburð á valkostum um staðsetningu hjúkrunarheimilis […]

Möguleikar á hóteli í miðbæ Hafnarfjarðar kannaðir

Á fundi bæjarráðs í morgun var rætt um hóteluppbyggingu í miðbæ Hafnarfjarðar.  Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri  segir grundvöll fyrir nýju hóteli í Hafnarfirði.  „ Í Hafnarfirði eru nú tvö þriggja stjörnu hótel, Hótel Víking og Hótel Hafnarfjörður með um 350 gistipláss og samkvæmt upplýsingum frá eigendum þeirra var nýting hótelanna mjög góð á síðasta ári. […]

Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna

Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar tónlistarskólanna verða haldnir í Langholtskirkju laugardaginn 31. janúar kl. 16.00. Einleikari á slagverk með hljómsveitinni er Helgi Þorleiksson, nemandi í Tónlistarskóla Garðabæjar. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Á efnisskránni eru eftirtalin verk: A. Marquez: Conga del Fuego Nuevo Áskell Másson: Konsertþáttur fyrir litla trommu og hljómsveit A. Dvorák: Sinfónía nr. 8 í G-dúr […]

Bæjarbúar ánægðir með Hafnarfjörð sem stað til að búa á

Dagana 21.október – 17.desember 2014 gerði Capacent Gallup þjónustukönnun meðal íbúa sveitarfélaga á landinu.  Hafnarfjarðarbær tók þátt í könnuninni  og var markmiðið að kanna ánægju með þjónustu Hafnarfjarðarbæjar. Verið er að kynna niðurstöðurnar fyrir nefndum og ráðum bæjarins og í kjölfarið verður farið í markvissa greiningu á því hvar og hvernig er hægt er að […]

Framköllun – Listamannsspjall

Sunnudag 1. febrúar kl. 15 ræðir Hekla Dögg Jónsdóttir við gesti um sýninguna Framköllun sem nú stendur yfir í Hafnarborg. Framköllun er sjálfstæður heimur þar sem sköpun, úrvinnsla, miðlun og viðtaka listaverks eiga sér stað í sama rými. Hér er á ferðinni ný innsetning sem er eitt umfangsmesta verk listamannsins hingað til og dregur saman […]

Menningarstyrkir til verkefna og viðburða

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði menningar- og lista í Hafnarfirði. Umsóknareyðublöð eru á www.hafnarfjordur.is, undir MÍNAR SÍÐUR / umsóknir. Athugið að til þess að sækja um þarf að skrá sig inna á MÍNAR SÍÐUR bæjarins. Aðstoð við skráningu er hægt að fá hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðar […]

Verðlaunað fyrir lestur í Öldutúnsskóla

Landsleikurinn ALLIR LESA var haldinn í haust. Á dögunum fór fram viðurkenning í Öldutúnsskóla til þess árgangs sem lagði sig mest fram í því verkefni en það var 8. bekkur skólans. Viðurkenningin var fólgin í vöffluboði í skólanum í kjölfar smá leiktíma. Í Öldutúnsskóla eins og öðrum skólum er leitast við að ná árangri í […]