Category: Fréttir

Afmæli var þemað í ár – Áslandsskóli 20 ára

Menningardagar setja skemmtilegan svip á skólalífið og allt samfélagið í Áslandi  Menningardagar í Áslandsskóla hafa verið árlegur viðburður í Áslandsskóla frá upphafi fyrir utan síðustu tvö ár sem lituð eru af sögulegum heimsfaraldri. Um er að ræða skemmtileg hefð og mikil tilhlökkun hjá bæði nemendum og starfsfólki við allan undirbúning og vinnu. Menningardagar hafa sett […]

Formleg afhending 3ju hæðar í Lífsgæðasetri St. Jó

Ný aðstaða mun valda byltingu í starfsemi samtakanna tveggja  Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowreglunnar á Íslandi afhenti, við formlega athöfn síðastliðinn föstudag, Alzheimersamtökunum og Parkinsonsamtökunum 530 fermetra húsnæði til afnota fyrir starfsemi samtakanna. Bæði samtökin hafa komið sér fallega fyrir á 3. hæð í Lífsgæðasetri St.Jó í Hafnarfirði og eru þegar farin að taka á móti […]

Afkoma umfram áætlanir

Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2021 var lagður fram í bæjarráði í dag. Rekstrarafkoma fyrir A og B hluta var neikvæð um 709 milljónir króna á árinu 2021. Áætlanir gerðu ráð fyrir neikvæðri afkomu á tímabilinu og er niðurstaðan 258 milljónum króna betri en áætlað var. Þessi niðurstaða skýrist einkum af 2,3 milljarða króna hækkun lífeyrisskuldbindingar […]

Vorsópun heldur áfram eftir stutt hlé vegna veðurs

Sópun gatna hófst aftur í morgun eftir stutt hlé vegna veðurs Sópun á aðalgötum í Hafnarfirði  hófst um mánaðarmót og mun standa yfir til og með 5. maí. Sópun hefur seinkað um nokkra daga vegna snjókomu og frosts en nú er aftur brostið á með vorblíðu.  Gangstéttir verða sópaðar á tímabilinu 1.apríl – 10. maí, […]

Bjartir dagar 2022

Framundan eru Bjartir dagar í Hafnarfirði pakkaðir af fjölbreyttum viðburðum sem stofnanir bæjarins, íþróttafélög, félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar standa fyrir. Hátíðin hefur haldist í hendur við Sumardaginn fyrsta undanfarin ár en mun, líkt og síðustu tvö árin, standa yfir lengur og vera hattur fjölbreyttra menningarviðburða í allt sumar. Sérstök áhersla er lögð á þátttöku barna […]

Nýsköpun í búsetuþjónustu við fatlað fólk

Fyrsti búsetukjarni sinnar tegundar í landinu Tímamótasamningur sem undirritaður var í upphafi árs 2019 er orðinn að veruleika með flutningi íbúa á ný og falleg heimili í búsetukjarna að Stuðlaskarði í Hafnarfirði. Þjónustusamningur Hafnarfjarðarbæjar við rekstrarfélagið Vinabæ á sér ekki fordæmi og felur í sér aðlagaða og sérhæfða búsetuþjónustu þar sem notendur sjálfir hafa bein […]

Viðburða- og menningarstyrkir í kjölfar Covid-19

Bæjarráð auglýsir sérstaka viðburða- og menningarstyrki í kjölfar Covid-19 lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl og verða styrkirnir teknir til úthlutunar í bæjarráði. Umsækjendur verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Til dæmis með fastri búsetu einstaklinga, með því að viðburðurinn eða verkefnið sem styrkt er fari fram í Hafnarfirði og/eða […]

Fræðsla um forvarnir sem auka öryggi barna

Fræðsla um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi fyrir íþróttafélög, starfsfólk og þjálfara  Hvenær:  Þriðjudaginn 12. apríl kl. 12  Hvar: Rafrænt – ýta hér til að mæta til fundar  Hafnarfjarðarbær hefur samið við Barnaheill um fræðslu fyrir starfsfólk um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Hátt í 1000 starfsmenn bæjarins hafa á síðustu árum sótt námskeið sem […]

Fimmti hópurinn útskrifast úr Fjölþættri heilsueflingu 65+

Nú í vikunni lauk fimmti hópurinn í Fjölþættri heilsueflingu 65+ í Hafnarfirði undir umsjón Janusar heilsueflingar tveggja ára heilsueflingarferli. Það hefur verið hefð frá upphafi að hafa sérstakan útskriftardag fyrir þá hópa sem ljúka þessu tveggja ára ferli.  Útskriftarhópurinn með starfsfólki Janusar heilsueflingar og Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra.   Fjarþjálfun sinnt af krafti á tímum Covid19 – […]

Sameiginleg yfirlýsing um samstarf vegna sorphirðu

Fulltrúar sveitafélaganna á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um samstarf vegna sorphirðu á dögunum í móttöku- og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa lengi kallað eftir samræmdu sorphirðukerfi við heimili og sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi. Undanfarna mánuði hafa Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) unnið að undirbúningi á slíku og var skýrsla starfshóps um samræningu […]