Framkvæmdir taka við sér í Hafnarfirði

Fréttir

Skriður er kominn á byggingaframkvæmdir í Hafnarfirði eftir að reglum um greiðslur byggingar- og gatnagerðargjalda var breytt. Samningarnir síðustu tvo mánuði eru þegar fleiri en allan fyrri hluta ársins.

 Greiðslum skipt upp til að liðka fyrir

Skriður er kominn á byggingaframkvæmdir í Hafnarfirði eftir að reglum um greiðslur byggingar- og gatnagerðargjalda var breytt. Samningarnir síðustu tvo mánuði eru þegar fleiri en allan fyrri hluta ársins.

„Ég tel víst að ákvörðun núverandi meirihluta, þar sem framkvæmdaaðilum er boðið upp á að skipta gatnagerðar- og byggingarréttargjöldum í fjóra hluta og greiða á allt að tveimur árum, hefur orðið til þess að liðka fyrir framkvæmdum,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðarbæjar.

Orri segir að ánægjulegt að sjá að reglubreytingin skili árangri strax. Hún eigi að auka möguleika fyrirtækja og einstaklinga til að hefja framkvæmdir. Hann bendir á að reglurnar séu settar tímabundið til tveggja ára til að bregðast við hertu útlánaumhverfi og hækkandi fjármagnskostnaði. Hún sé liður í að létta undir með húsbyggjendum og tryggja að ekki verði skortur á húsnæði í Hafnarfirði þegar fram í sæki. Hann hvetur fólk og fyrirtæki til að kynna sér nýju reglurnar.

„Við finnum fyrir miklum áhuga húsbyggjenda á að hrinda áformum sínum í framkvæmd á næstunni. Við munum sjá mörg spennandi verkefni fara af stað á næstu mánuðum,“ segir Orri og nefnir verkefni í Áslandi 4, við Suðurhöfnina og Hrauni vestur sem og áform um atvinnuhúsnæði í Kapelluhrauni þar á meðal.

„Það er mikilvægt að Hafnarfjarðarbær geri sitt til að halda hjólum atvinnulífisins gangandi.“

  • Reglur um skiptingu byggingarréttargjalda má lesa hér.
Ábendingagátt