Lóð fyrir tvíbýli að Drangsskarði 12
Einstök lóð fyrir tveggja íbúða hús að Drangsskarði 12 er komin í auglýsingu. Búið er að marka lágmarksverð í lóðina, miðað við 300 fm byggingingarmagn sem er kr. 24.809.400.
Uppbygging í grónu hverfi í Skarðshlíð
Einstök lóð fyrir tveggja íbúða hús að Drangsskarði 12 er komin í auglýsingu. Á lóðinni er heimilt að byggja tvíbýlishús á tveimur hæðum.
Um er að ræða vel staðsetta lóð í grónu hverfi í enda botnlanga. Skarðshlíðin er vinsælt og fjölskylduvænt hverfi með fjölbreyttum möguleikum til afþreyingar og útivistar.
Búið er að marka lágmarksverð í lóðina, miðað við 300 fm byggingingarmagn sem er kr. 24.809.400
Tilboð undir lágmarksverði teljast ógild.
- Almennar-reglur-um-uhtlutun-loda-2022-1
- Drangsskard_6-12_Bjargsskard_2g_3-5_H – 1
- Drangsskard_6-12_Bjargsskard_2g_3-5_M – 1
Skilað er inn tilboði í lóðina í gegnum mínar síður hjá Hafnarfjarðarbæ, umsókn um lóð, ásamt þeim fylgigögnum sem skilgreind eru í almennum reglum um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar. Þar sem um er að ræða lóð í þegar byggðu hverfi er óskað eftir að verkáætlun framkvæmda sé skilað inn samhliða tilboði í lóðina.
Umsóknin þarf að hafa borist fyrir kl. 13 miðvikudaginn 30. júlí til að teljast gild.