Lóð undir flutningshús við Hringbraut 54a
Einstök lóð undir lítið einbýlishús við Hringbraut 54a er komin í auglýsingu. Búið er að marka lágmarksverð í lóðina, miðað við hámarksbyggingarmagn 100 fm sem er kr. 10.337.300
Lóð undir flutningshús á Hringbraut 54a
Einstök lóð undir lítið einbýlishús við Hringbraut 54a er komin í auglýsingu. Þar var áður Kaldárstígur en á neðri hluta hans var gerð lóð nr. 53a við Suðurgötu. Lóðin er ætluð fyrir flutningshús. Heimilt er að hlaða og/eða steypa kjallara undir slíkt hús, gólfkóti ákvarðast á hæðablaði. Hámarksstærð hússins er 100 fm, skv. deiliskipulagi.
Tilboðsfrestur er 20. ágúst 2025
Sótt er um lóðina á mínum síðum á hafnarfjordur.is Búið er að marka lágmarksverð í lóðina, miðað við hámarksbyggingarmagn 100 fm sem er kr. 10.337.300. Tilboð undir lágmarksverði teljast ógild.
Tilboð í lóð ásamt öllum fylgigögnum, sem eru skilgreind í almennum reglum um úthlutun lóða og sölu byggingaréttar þurfa að berast fyrir kl. 13 miðvikudaginn 20. ágúst til Þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 8-10.
- [INNSIGLAÐ]_24.233.5_H-F
- [INNSIGLAÐ]_24.233.5_M-F
- 1400_201303060_12270_ski
- Almennar-reglur-um-uhtlutun-loda-2022-1
- sudurbaer-greinargerð og skipulagsskilmálar