Jólabærinn Hafnarfjörður

Hafnarfjörður breytist í sannkallaðan jólabæ í aðdraganda jóla þar sem fjölskyldur og vinahópar upplifa hlýlega og afslappaða jólastemningu.

Við erum jólabærinn!

Í aðdraganda jóla breytist Hafnarfjörður í sannkallaðan jólabæ þar sem hlýleg og afslöppuð jólastemning ríkir. Bærinn fyllist af ljúfum tónum, mildum jólaljósum, freistandi vörum, blómstrandi menningarlífi, óvæntum uppákomum og öðruvísi jóladagskrá. Hefð er fyrir jólaleið um hjarta Hafnarfjarðar sem býður upp á bland í poka af skemmtun, verslun, veitingum og helling af frískandi hafnfirsku sjávarlofti. Aðventan er tími samveru og jólabærinn Hafnarfjörður er fullkominn staður til að skapa fallegar og góðar minningar.

Viðburðir og fréttir

Jólabærinn

Jólaþorpið

Jólaþorpið er opið föstudaga frá kl. 17-20 og laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-18. Þar iðar allt af lífi og fjöri og fagurlega skreytt jólahúsin í Jólaþorpinu eru orðin landsþekktur og vinsæll söluvettvangur fyrir ýmis konar gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun sem tilvalið er að setja í jólapakkann.

Hjartasvellið

Hjartasvellið verður opið föstudaga til sunnudaga frá 13. nóvember til 23. desember 2026. Hjartasvellið er á Ráðhústorgi, fyrir framan Bæjarbíó og Bókasafn Hafnarfjarðar og tengir skemmtilega saman Jólaþorpið í miðbænum og ljósadýrðina í Hellisgerði.

Hellisgerði

Ljósadýrð og ævintýraveröld ríkir í Hellisgerði, hinum aldargamla og gullfallega lystigarði í miðbæ Hafnarfjarðar. Rautt jólahjarta tekur á móti gestum við inngang frá Reykjavíkurvegi og í garðinum er hægt að njóta lystisemda á kaffihúsi meðan ljósaseríur og ljósafígúrur gleðja augað og andann.

  • Hellisgata 3

Jólaleiðin okkar

Hefð hefur skapast fyrir jólaleið sem liggur um hjarta Hafnarfjarðar og felur í sér bland í poka af upplifun, skemmtun, útivist, verslun, þjónustu, veitingum og heilum helling af frískandi hafnfirsku sjávarlofti.

  • Hafnarfjörður

Hagnýtar upplýsingar

Framkvæmd Jólaþorpsins

Hafnarfjarðarbær hefur umsjón með Jólaþorpinu en Jólaþorpið er jólamarkaður að evrópskri fyrirmynd. Jólaþorpið hefur sett svip sinn á mannlífið í miðbæ Hafnarfjarðarinnar í rúm tuttugu ár. Þorpið hefur slegið í gegn og laðað gesti alls staðar frá.

Opnunartími

Jólaþorpið opnar föstudaginn 13. nóvember 2026.

  • Opið föstudaga fram að jólum frá kl. 17-20
  • Opið laugardaga og sunnudaga frá 13-20
  • Opið á Þorláksmessu frá kl. 13-21

Upplýsingasími

Starfsfólk Jólaþorpsins á vakt hverju sinni svarar í síma 664-5566. Hægt er að senda fyrirspurnir á jolathorp@hafnarfjordur.is

Myndir frá Jólabænum

Hér má finna myndir frá Jólabænum sem fjölmiðlum og öðrum er frjálst að nota.

Skoða myndasafn
Bílastæði

Fjöldi bílastæða er í miðbæ Hafnarfjarðar. Ef ekki finnst stæði næst miðbænum má leggja víða og ganga, til dæmis:

  • Tónlistarskólinn, 350 metrar
  • Íþróttahúsið við Strandgötu, 500 metrar
  • Menntasetrið við Lækinn, 500 metrar
  • Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, 950 metrar
Salerni

Snyrtingar fyrir gesti eru fyrir aftan Bæjarbíó. Almenningssalerni eru einnig á Bókasafni Hafnarfjarðar, í Byggðasafni Hafnarfjarðar, í Hafnarborg og á 2. Hæð í Verslunarmiðstöðinni Firði.

Lokanir gatna

Strandgatan (frá Lækjargötu að Reykjavíkurvegi) breytist í göngugötu og verður því lokuð fyrir umferð bíla á opnunartímum jólaþorpsins á eftirtöldum dögum og tímum til 23.desember 2026:

  • Alla föstudaga frá 13.nóvember – lokað frá 17-20
  • Allar helgar frá 13.nóvember – lokað frá 13-18
  • Á Þorláksmessu 23. desember – lokað frá 13-21
  • Bílastæðið við Ráðhústorg verður allt lokað frá 20.október til 5.janúar
Göngum vel um bæinn

Ruslatunnur eru víða á svæðinu ásamt söfnunartunnum fyrir dósir og flöskur – göngum vel um bæinn okkar á meðan Jólaþorpið er opið – sem og aðra daga.

Drónaflug

Hafnarfjarðarbær bendir þeim sem vilja fljúga dróna á 12. grein reglugerðar um starfrækslu fjarstýrðra loftfara. Fyrsta greinin segir að óheimilt er að fljúga fjarstýrðu loftfari yfir mannfjölda.

Öryggi í fyrirrúmi í Jólaþorpinu

Til að tryggja öryggi gesta jólaþorpsins hefur verið gerð áætlun fyrir alla aðila er koma að öryggismálum á svæðinu.

Undirbúningshópur Jólaþorpsins hefur átt í góðu samstarfi við meðal annars fulltrúa slökkviliðs, sjúkraflutninga og lögreglu. Hugað hefur verið sérstaklega að skipulagi á svæðinu og hugsanlegum uppákomum, aðkomu lögreglu, slökkviliðs og sjúkrabíla og annarra viðbragðsaðila sem og verkþætti og viðbrögð þeirra.