Opið fyrir umsóknir í Jólaþorpið 2026

Fréttir Jólabærinn

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði 2026.  Jólaþorpið vill fá til liðs við sig einstaklinga, samtök og fyrirtæki sem hafa til sölu gæðavöru og fjölbreytt úrval varnings með skýra tengingu við jólahefðir landsmanna.

Opið fyrir umsóknir í Jólaþorpið 2026 

Hafnarfjarðabær leitar að hárréttri samsetningu seljenda í Jólaþorpinu 2026 á Thorsplani. Opnað hefur verið fyrir umsóknir.

Horft verður til framboðsins við val á seljendum. Ein til sex helgar eru í boði; allt eftir ásýnd þorpsins í heild og eftirspurn varnanna. Jólaþorpið vill fá til liðs við sig einstaklinga, samtök og fyrirtæki sem hafa til sölu gæðavöru, fjölbreytt úrval varnings sem hefur skýra tengingu við jólahefðir landsmanna. 

Vilt þú vera með í Jólaþorpinu í ár? Hvað þarf til? 

  • Horft er sérstaklega til nokkurra þátta þegar valið er milli seljenda fyrir Jólaþorpið. Fyrst og fremst að þeir bjóði gæðavörur litið til matar, drykkja og upplifunar og að tengingin við jólin sé skýr.
  • Horft er til fjölbreytni þorpsins og heildarupplifunar þegar valið er milli seljenda. Það á að vera ómissandi hefð að koma í Jólaþorpið og smakka og lykta af jólunum. 

 

Keppt um sölubása 

Góð aðsókn hefur verið í söluhúsin í Jólaþorpinu síðustu ár. Þetta árið opnar þorpið föstudaginn 13. nóvember og verður opið alla aðventuna á föstudögum frá kl. 17-20, laugardögum frá 13-20 og sunnudögum frá kl. 13-18. Opið verður á Þorláksmessu frá 13-21. 

Í Jólaþorpinu verða um tuttugu skreytt einingahús sem eru 5,8 m2 að stærð. Leigugjald á söluhúsi er 26.900 kr. fyrir helgina. Miðjuhúsið á Thorsplani er stærra og verður sama aðilanum úthlutað því húsi allt tímabilið, leigugjaldið er 53.800 kr fyrir helgina. Innifalið í leigugjaldi er allur kostnaður við uppsetningu, rekstur húss og þrif á svæðinu. Að auki mun Hafnarfjarðarbær sjá um að laða að gesti og kynna Jólaþorpið í Hafnarfirði með ýmsum hætti. 

Hvað sölumuni varðar þurfa söluaðilar að uppfylla lög og reglur sem um þá kunna að gilda. Sé vara eða vöruflokkur skilyrtur á einhvern hátt eða háður.

 

Umsóknarfrestur til og með 1. október 2026

Umsækjendur þurfa að skila inn umsókn um hús í Jólaþorpinu og opið er fyrir umsóknir til og með 1. október 2026 en eftir það fara nýjar umsóknir á biðlista. Hægt er að senda fyrirspurnir á jolathorp@hafnarfjordur.is

Sækja um hér

Nánari upplýsingar um Jólabæinn Hafnarfjörð

Jólaþorpið í Hafnarfirði er á Facebook

 

Ábendingagátt