Söguleg stund í Hafnarfjarðarhöfn

Fréttir

Í fyrsta sinn frá því farþegaskip fóru að koma reglulega til Hafnarfjarðar eru þrjú skemmtiferðaskip samtímis í Hafnarfjarðarhöfn. Skipin, sem öll eru frá frönsku útgerðinni Ponant, leggja af stað í siglingar um Ísland og norðurslóðir með Hafnarfjörð sem mikilvæga heima- og þjónustuhöfn. Saman eru um borð hátt í 2.000 farþegar og áhafnarmeðlimir.

Þrjú farþegaskip saman í suðurhöfninni

Í fyrsta sinn frá því farþegaskip fóru að koma reglulega til Hafnarfjarðar eru þrjú skemmtiferðaskip samtímis í Hafnarfjarðarhöfn. Skipin, sem öll eru frá frönsku útgerðinni Ponant, leggja af stað í siglingar um Ísland og norðurslóðir með Hafnarfjörð sem mikilvæga heima- og þjónustuhöfn. Saman eru um borð hátt í 2.000 farþegar og áhafnarmeðlimir, auk þess sem fjölmargir innlendir þjónustuaðilar koma að móttöku og þjónustu skipanna.

Nýtt þjónustuhús til notkunar í vor

Til að mæta aukinni umferð tók Hafnarfjarðarhöfn í notkun nýtt þjónustuhús á Suðurbakka í maí. Þar geta farþegar beðið þægilega eftir brottför eða annarri ferðaþjónustu, sem bætir bæði þjónustu og upplifun gesta sem heimsækja Hafnarfjörð.

 

Skapar líf, verðmæt tækifæri og atvinnu fyrir bæinn

Þetta sumar verður metár í móttöku skemmtiferðaskipa og staðfestir enn frekar mikilvægi Hafnarfjarðar sem heima- og þjónustuhafnar fyrir siglingar um Ísland og norðurslóðir. Þannig er Hafnarfjörður farinn að gegna stærra hlutverki sem áfangastaður og þjónustumiðstöð fyrir skemmtiferðaskip – sem skapar líf, atvinnu og verðmæt tækifæri fyrir bæinn.

 

Fréttir af vef Hafnarfjarðarhafnar

Ábendingagátt