Deildarstjóri leikskólamála (tímabundin staða til eins árs)

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 30.03.2026

Umsóknarfrestur til: 13.04.2026

Tengiliður: Fanney Dóróthe Halldórsdóttir

Skrifstofa Mennta- og lýðheilsusviðs óskar eftir metnaðarfullum og öflugum deildarstjóra leikskólamála til að koma að markvissri, samþættri þjónustu. Ráðning er til eins árs frá 1. ágúst 2026 – 31. Júlí 2027. Áhersla er lögð á gott samstarf milli fagfólks og þverfaglega nálgun til að tryggja farsæld barna. 

Á mennta- og lýðheilsusviði ríkir faglegt umhverfi þar sem metnaður, traust og lausnamiðuð vinnubrögð eru í fyrirrúmi, auk þess sem starfsfólk fær stuðning og tækifæri til þróunar, meðal annars með fræðslu og endurmenntun. Krafa er um sterk tengsl við leik- og grunnskóla, foreldra og aðra samstarfsaðila innan og utan sveitarfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Er næsti yfirmaður leikskólastjóra og hefur yfirumsjón og eftirlit með rekstri leikskólanna
  • Er tengiliður á milli leikskóla og rekstraraðila með setu í þeirri stjórnarnefnd sem um málaflokkinn fjallar og framfylgir samþykktum rekstraraðila um málefni leikskóla
  • Er talsmaður leikskólamála út á við f.h. Hafnarfjarðarbæjar
  • Er leikskólastjórum og starfsfólki leikskóla til ráðgjafar um fagleg og rekstrarleg málefni
  • Vinnur að gerð fjárhagsáætlana ásamt leikskólastjórum í samvinnu við rekstraraðila og ber ábyrgð á að hún sé haldin
  • Umsýsla með gögn, fyrirspurnir og ýmis málefni fyrir sviðsstjóra, skráning gagna í skjalakerfi
  • Tekur þátt í afgreiðslu mannauðsmála og stjórnsýslulegra mála með leikskólastjórum
  • Hefur yfirumsjón með upplýsinga- og kynningarmálum, auglýsingum sviðsins í samráði við samskiptastjóra bæjarins og eftirlit með rannsóknum, greiningum og tölfræðiúrvinnslu sviðsins
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgir umsókn)
  • Framhaldsháskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði stjórnunar, reksturs, mannauðsmála eða verkefnastjórnunar
  • Þekking á leikskólastarfi
  • Þekking og reynsla af stjórnun og mannauðsmálum
  • Þekking og reynsla á rekstri og opinberri stjórnsýslu
  • Afburða samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri Mennta- og lýðheilsusviðs, fanney@hafnarfjordur.is 

Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2026

Greinargóð ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini fylgi umsókn. 

Krafa er gerð um hreint sakavottorð.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Holtasel – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli – tímabundin ráðning
Umsjónarkennari – Engidalsskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Setbergsskóli
Umsjónarkennari í miðdeild – Setbergsskóli
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Sérkennari – Hraunvallaskóli
Þroskaþjálfi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á unglingastigi – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli
Kennari í sérdeild – Lækjarskóli
Þroskaþjálfi 80-100 % starf – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta – eða miðstigi – Lækjarskóli
Kennari í hönnun og smíði – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Skarðshlíðarskóli
Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Áslandsskóli – Deildarstjóri unglingastigs – afleysing til eins árs
Áslandsskóli – List- og verkgreinakennari með áherslu á hönnun og smíði
Íþróttakennari – Áslandsskóli
Áslandsskóli – Umsjónarkennari á yngsta stig skólaárið 2026-2027
Náms- og starfsráðgjafi í Öldutúnsskóla
Umsjónarkennari á yngsta stigi- Öldutúnsskóli