Flokkstjórar í Vinnuskóla Hafnarfjarðar

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 31.03.2026

Umsóknarfrestur til: 14.04.2026

Tengiliður: Maríanna Wathne Kristjánsdóttir

Á sumrin er Vinnuskóli Hafnarfjarðar stærsta starfstöðin í bænum. Starf í skólanum gefur einstaka möguleika á því að njóta útiveru og eiga þátt í að prýða bæjarlandið í samstarfi við ungt fólk. Auglýst er eftir starfsfólki til sumarstarfa við flokkstjórn almennra hópa Vinnuskólans sem starfa út frá grunnskólum Hafnarfjarðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórnun starfs vinnuskólahóps og vera fyrirmynd ungs fólks
  • Leiðbeina nemendum um vinnubrögð og verklag
  • Vinna með uppbyggileg samskipti og skapa liðsheild í nemendahópnum
  • Skil á tímaskráningum og frammistöðumati nemenda
  • Önnur störf samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að starfa með ungu fólki og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
  • Samskiptafærni og hæfni til að vera nemendum góð fyrirmynd
  • Þekking á starfi Vinnuskólans eða önnur reynsla af starfi með börnum eða unglingum er kostur
  • Reynsla af garðyrkju- og umhirðutengdum störfum er kostur
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hafnarfjarðarbæjar
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
  • Góð íslensku -og enskukunnátta, B2 skv samevrópskum tungumálaramma

Aðrar upplýsingar um starfið

  • Flokkstjórar hefja störf 4.júní
  • Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags
  • Flokkstjórar almennra grunnskólahópa hópa í Vinnuskóla Hafnafjarðar geta unnið að hámarki 300 klst
  • Vinnuvika starfsfólks Hafnarfjarðar er 36 klst

Umsóknafrestur er til og með 14. apríl nk.

Nánari upplýsingar veitir Maríanna Wathne Kristjánsdóttir, umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar í gegnum netfangið mariannak@hafnarfjordur.is 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Holtasel – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli – tímabundin ráðning
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Sérkennari – Hraunvallaskóli
Þroskaþjálfi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Setbergsskóli
Umsjónarkennari í miðdeild – Setbergsskóli
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Umsjónarkennari á miðstigi – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á unglingastigi – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli
Kennari í sérdeild – Lækjarskóli
Þroskaþjálfi 80-100 % starf – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta – eða miðstigi – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Kennari í hönnun og smíði – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Skarðshlíðarskóli
Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Áslandsskóli – Deildarstjóri unglingastigs – afleysing til eins árs
Áslandsskóli – List- og verkgreinakennari með áherslu á hönnun og smíði
Íþróttakennari – Áslandsskóli
Áslandsskóli – Umsjónarkennari á yngsta stig skólaárið 2026-2027
Náms- og starfsráðgjafi í Öldutúnsskóla
Umsjónarkennari á yngsta stigi- Öldutúnsskóli