Íslenskukennari á unglingastigi, með áherslu á sérkennslu – Öldutúnsskóli.

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 09.04.2026

Umsóknarfrestur til: 16.04.2026

Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir

 

Öldutúnsskóli auglýsir eftir íslenskukennara á unglingastigi, með áherslu á sérkennslu. 

Við Öldutúnsskóla stunda um 590 nemendur nám í 1.–10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á faglegt og uppbyggilegt námsumhverfi þar sem markvisst er unnið að því að efla áhuga nemenda á námi og stuðla að árangri þeirra. Þá er lögð rík áhersla á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, öfluga teymisvinnu innan árgangateyma og markvissa teymiskennslu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og endurspeglast þau í öllu starfi skólans. Starfið byggir meðal annars á hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Jafnframt er lögð áhersla á umhverfismál í daglegu starfi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  •          Annast sérkennslu í íslensku á unglingastigi
  •          Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
  •          Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  •          Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  •          Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  •          Nám í sérkennslu er kostur
  •          Reynsla af íslenskukennslu er æskileg
  •          Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  •          Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  •          Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  •          Stundvísi og samviskusemi
  •          Mjög góð íslenskukunnátta

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.

Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma: 664-5894, og  Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5895.

Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2026

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Tónmenntakennari – Skarðshlíðarskóli
Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Áslandsskóli – Umsjónarkennari á yngsta stig skólaárið 2026-2027
Umsjónarkennari á yngsta stigi- Öldutúnsskóli
Náms- og starfsráðgjafi – Öldutúnsskóli
Áslandsskóli – Deildarstjóri unglingastigs – afleysing til eins árs
Áslandsskóli – List- og verkgreinakennari með áherslu á hönnun og smíði
Íþróttakennari – Áslandsskóli
Íslenskukennari á unglingastigi, með áherslu á sérkennslu – Öldutúnsskóli.
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Umjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Sérkennari – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli – tímabundin ráðning
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli
Kennari í hönnun og smíði – Víðistaðaskóli