Íþróttakennari – Áslandsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 30.03.2026

Umsóknarfrestur til: 15.04.2026

Tengiliður: Unnur Elfa Guðmundsdóttir

Áslandsskóli óskar eftir að ráða íþróttakennara skólaárið 2026-2027 í afleysingu.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026 og er um að ræða 80%-100% starf í afleysingu til eins árs.

Áslandsskóli var stofnaður árið 2001 og er staðsettur í Áslandsshverfi í Hafnarfirði. Áslandsskóli er heildstæður grunnskóli með 1.-10.bekk og eru nemendur um 420 talsins. Einkunnarorð Áslandsskóla eru samvinna, ábyrgð, tillitsemi og traust. Áslandsskóli er heilsueflandi grunnskóli og er unnið markvisst að þeim málum innan skólans. Lögð er áhersla á að nemendur fái námsefni við hæfi og þrói þannig og þroski hæfileika sína með markvissum hætti. Í skólanum er lögð áhersla á vellíðan nemenda og góðan námsárangur.

Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum, styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda og skapa jákvæðan skólabrag. 

Skólinn byggir stefnu sína á fjórum stoðum náms og menntunar sem eru:

  • Allar dygðir
  • Hnattrænn skilningur
  • Þjónusta við samfélagið
  • Að gera allt framúrskarandi vel

Áslandsskóli notar spjaldtölvur í 5.-10. bekk skólans og hafa allir nemendur í þeim árgöngum afnot af slíku námstæki, sem hefur reynst vel í námi og stöðugt verið að þróa nýjar aðferðir til kennslu. Nemendur í yngri bekkjum hafa einnig kost á að nýta spjaldtölvurnar.

Áslandsskóli er símalaus skóli f´ra 1.-10.bekk.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.aslandsskoli.is

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna íþróttakennslu fyrir skólann
  • Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótum á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og SMT skólafærni
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Fullgild réttindi til sundkennslu
  • Haldgóð þekking á kennslufræði íþrótta
  • Þekking á SMT/PBS skólafærni
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta skv. C1 

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026

Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnur Elfa Guðmundsdóttir skólastjóri, unnur@aslandsskoli.is, og Hálfdan Þorsteinsson aðstoðarskólastjóri halfdanth@aslandsskoli.is eða í síma 585-4600.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 15.apríl 2026

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Holtasel – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli – tímabundin ráðning
Sérkennari – Hraunvallaskóli
Þroskaþjálfi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Setbergsskóli
Umsjónarkennari í miðdeild – Setbergsskóli
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli
Kennari í sérdeild – Lækjarskóli
Þroskaþjálfi 80-100 % starf – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta – eða miðstigi – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á unglingastigi – Víðistaðaskóli
Kennari í hönnun og smíði – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Skarðshlíðarskóli
Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Áslandsskóli – Umsjónarkennari á yngsta stig skólaárið 2026-2027
Náms- og starfsráðgjafi í Öldutúnsskóla
Umsjónarkennari á yngsta stigi- Öldutúnsskóli
Áslandsskóli – Deildarstjóri unglingastigs – afleysing til eins árs
Áslandsskóli – List- og verkgreinakennari með áherslu á hönnun og smíði
Íþróttakennari – Áslandsskóli