Sérkennari – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 19.03.2026

Umsóknarfrestur til: 02.04.2026

Tengiliður: Lars J. Imsland

Hraunvallaskóli auglýsir eftir sérkennara til að sinna sérkennslu skólaárið 2026-2027

Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.

 

Sérkennari er hluti af sérkennsluteymi skólans og vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara að námi barna með sérþarfir.  

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast sérkennslu í skólanum.
  •  Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  •  Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is  og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800

Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2026. Um er að ræða 50-100% starf

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf