Starfsmaður í heimaþjónustu – Sumarstarf

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 10.03.2026

Umsóknarfrestur til: 10.04.2026

Tengiliður: Elín Ósk Baldursdóttir

Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í stuðningsþjónustu í sumarafleysingar. Starfshlutfall er 100% 

Stuðningsþjónustan ber ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar. Leitast er við að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.

Helstu verkefni:

  • Aðstoð við almenn þrif á heimilum
  • Virkja þjónustuþega
  • Aðstoð við klæðnað, að matast eða gefa fyrirfram skömmtuð lyf
  • Félagslegur stuðningur
  • Samstarf við aðra starfsmenn stuðningsþjónustunnar
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi í stuðningsþjónustu æskileg
  • Jákvæðni í starfi, þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Íslenskukunnátta að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Bílpróf 

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar.

Nánari upplýsingar veitir Elín Ósk Baldursdóttir deildarstjóri elinob@hafnarfjordur.is eða í síma 585 5500.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Tónmenntakennari – Skarðshlíðarskóli
Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi- Öldutúnsskóli
Náms- og starfsráðgjafi – Öldutúnsskóli
Áslandsskóli – Deildarstjóri unglingastigs – afleysing til eins árs
Áslandsskóli – List- og verkgreinakennari með áherslu á hönnun og smíði
Íþróttakennari – Áslandsskóli
Áslandsskóli – Umsjónarkennari á yngsta stig skólaárið 2026-2027
Sérkennari – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli – tímabundin ráðning
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli
Íslenskukennari á unglingastigi, með áherslu á sérkennslu – Öldutúnsskóli.
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Kennari í hönnun og smíði – Víðistaðaskóli