Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk – Berjahlíð
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 04.03.2026
Umsóknarfrestur til: 25.03.2026
Tengiliður: Kristín Anna Th. Jensdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn til sumarafleysinga í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Berjahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Spennandi og skemmtilegt starf með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Starfshlutfall er 60-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
- Almenn heimilisstörf
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
- Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
- Ökuréttindi
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Anna Th. Jensdóttir forstöðumaður í síma 585-5761 eða á netfanginu kristinj@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.