Umsjónarkennari á yngsta stigi- Öldutúnsskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 01.04.2026
Umsóknarfrestur til: 15.04.2026
Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir
Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026
Við Öldutúnsskóla stunda um 590 nemendur nám í 1.–10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á faglegt og uppbyggilegt námsumhverfi þar sem markvisst er unnið að því að efla áhuga nemenda á námi og stuðla að árangri þeirra. Þá er lögð rík áhersla á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, öfluga teymisvinnu innan árgangateyma og markvissa teymiskennslu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og endurspeglast þau í öllu starfi skólans. Starfið byggir meðal annars á hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Jafnframt er lögð áhersla á umhverfismál í daglegu starfi skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast almenna kennslu og umsjón á yngsta stigi
- Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk skólans
- Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
- Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta stigi æskileg
- Áhugi og/eða reynsla af umsjónarkennslu
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is og Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 664-5895; aslaughr@oldutunsskoli.is.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http:www.oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2026
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.