Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 19.03.2026

Umsóknarfrestur til: 02.04.2026

Tengiliður: Lars Jóhann Imsland

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara í Fjölgreinadeild skólans fyrir skólaárið 2026-2027. 

Í Fjölgreinadeild eru nemendur sem á grundvelli fjölþætts vanda geta ekki nýtt alfarið þau námstilboð sem bjóðast í þeirra heimaskóla.  Starfsstöð umsjónarkennara er við Fléttuvelli á skólalóð Hraunvallskóla og er skipuð fjórum til fimm starfsmönnum.

Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins. Einnig þarf viðkomandi hafa góða leiðtogahæfileika, víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Fjölbreytt nálgun í kennslu og umsjón með nemendum í samvinnu við kennara, stoðþjónustu og foreldra
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við skólaþjónustu
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Taka  þátt í stefnumótunarvinnu
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is,  í síma 590 2800. 

Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2026

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá og kynningarbréf. 

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf