Hafnarfjörður
  • Þjónusta
    Close sub menu button
    • Íþróttir og útivera

      Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.

      • Göngu- og hjólaleiðir
      • Íþróttafélög
      • Íþróttir og tómstundir
      • Leik- og boltavellir
      • Matjurtagarðar
      • Sumarnámskeið
      • Sundlaugar
    • Skóli og frístundastarf

      Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.

      • Dagforeldrar
      • Félagsmiðstöðvar
      • Frístundaheimili
      • Frístundastyrkur
      • Frístundaakstur
      • Grunnskólar
      • Heimgreiðslur
      • Leikskólar
      • Menntastefna
      • Tónlistarskólar
      • Ungmenni
    • Umhverfi og samgöngur

      Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.

      • Dýr
      • Hávaði
      • Hreinsun og umhirða
      • Nágranna­varsla
      • Sorphirða
      • Strætó
      • Veðrið í bænum
      • Veitur
      • Þjónustumiðstöð
    • Velferð

      Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.

      • Barnavernd
      • Eldra fólk
      • Fólk með fötlun
      • Félagsleg úrræði
      • Fjölmenning
    • Farsæld barna

      Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.

    • Þjónustuver

      Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.

  • Mannlíf
    Close sub menu button
    • Menning og listir

      Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.

      • Árlegir viðburðir
      • Bókasafn
      • Byggðasafn
      • Bæjarbíó
      • Bæjarlistamaður
      • Hafnarborg
      • Menningarstyrkir
      • Kórsjóður Hafnarfjarðar
    • Ferðaþjónusta

      Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.

      • Gististaðir
      • Tjaldsvæði
      • Upplýsingamiðstöð
    • Heilsubærinn

      Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.

      • Íþróttafólk ársins
      • Áhugaverðir staðir
      • Frístundastyrkir barna
      • Frístundastyrkir eldra fólks
      • Göngu- og hjólaleiðir
      • Íþróttafélög
      • Leik- og boltavellir
      • Sundlaugar
      • Sumarnámskeið
      • Veðrið í bænum
    • Viðburðir

      Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.

    • Menningararfur

      Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.

      • Álfa- og víkingabær
      • Brandarabærinn
      • Jólabærinn
      • Menningarbærinn
      • Saga Hafnarfjarðar
      • Vinabærinn
  • Framkvæmdir
    Close sub menu button
    • Byggingarmál

      Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.

      • Byggingarmál
      • Fyrirspurnir og viðtöl
      • Eyðublöð byggingarmála
      • Leiðbeiningar um rafræn skil gagna byggingarmála
      • Fasteignagjöld
    • Kort af bænum

      Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.

    • Lausar lóðir

      Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.

      • Atvinnuhúsnæði
      • Hesthús
      • Íbúðarhúsnæði
      • Lóðarleigusamningar
    • Skipulag

      Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.

      • Aðalskipulag
      • Framkvæmdir
      • Skipulag í kynningu
      • Uppbygging
      • Samgöngusáttmáli
      • Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar
    • Afnotaleyfi

      Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar hefur eftirlit með öllum greftri og framkvæmdum í landi bæjarins.

  • Stjórnsýsla
    Close sub menu button
    • Atvinna og mannauður

      Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.

      • Laus störf
      • Símatími
      • Starfsfólk
      • Störf í leikskólum
      • Störf í tómstundamiðstöðvum
      • Vinnuskólinn
      • Starfsvottorð
    • Bæjarstjórn

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu. 

      • Bæjarstjóri
      • Bæjarstjórn
      • Fundur í beinni
      • Ráð og nefndir
    • Fundargerðir

      Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.

    • Rekstur og tölfræði

      Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.

      • Ársreikningar
      • Fjárhagsáætlanir
      • Húsnæðismál
      • Íbúakannanir
      • Opið bókhald
      • Umferð um vefinn
      • Vitinn hönnunarkerfi
    • Gjaldskrár

      Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.

    • Stjórnkerfi

      Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.

      • Barnvænt sveitarfélag
      • Hafðu áhrif
      • Heildarstefna Hafnarfjarðar
      • Neyðarnúmer
      • Neyðarstjórn
      • Persónuvernd
      • Ráð og nefndir
      • Stefnur og samþykktir
      • Þóknanir kjörinna fulltrúa
      • Skipurit
      • Styrkir
      • Útboð
    • Fréttir og skýrslur

      Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.

      • Fjölmiðlatorg
      • Fréttir og tilkynningar
      • Reglur um samfélagsmiðla
      • Skýrslur
      • Verkefnasögur
      • Útgefið efni
Mínar síður
IS
  • English
Toggle Mobile Menu
Tómstundamiðstöðvar
  • Störf hjá Hafnarfjarðarbæ
  • Störf í leikskólum
  • Störf í tómstundamiðstöðvum
  • Mannauðsstefna
  • Jafnréttis- og mannréttindastefna
  • Hlunnindi
  • Nýtt starfsfólk hjá Hafnarfjarðarbæ

Tómstundamiðstöðvar

Skoða öll störf
Tómstundamiðstöðvar Collapse icon
Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot – Víðistaðaskóli 08.10.2026
Ábendingagátt Aðstoð
  • Fundargerðir
  • Netspjall
  • Neyðarnúmer
Hafnarfjörður

Hafnarfjarðarbær

Strandgata 8–10

220 Hafnarfjörður

Kennitala: 590169-7579

  • facebook
  • instagram

Hafðu samband

Opið mán.–fimmtudaga: 08:00–16.00

Opið föstudaga: 08:00–14:00

585 5500

hafnarfjordur@hafnarfjordur.is

  • facebook
  • instagram

Flýtileiðir

  • Ábendingagátt
  • Laus störf
  • Betri Hafnarfjörður
  • Gjaldskrár
  • Starfsfólk
  • Neyðarnúmer

Starfsmaður í einstaklingsstuðningi – tímavinna

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 22.09.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur. Miðað er við að umsækjandi þurfi að vera orðinn 20 ára. 

Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Góð enskukunnátta 

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi. Athugið að ekki er ráðið í einungis sumarstarf. 

Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500. 

Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur tímabundin afleysingastörf

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.

Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Afleysingastörf í leikskólum

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.

Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 16.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.

Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.

Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera

með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Kerfisstjóri hjá Hafnarfjarðarbæ

Umsóknarfrestur

22.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 06.10.2026

Umsóknarfrestur til: 22.10.2026

Tengiliður: Eymundur Björnsson

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða reyndan og skipulagðan einstakling í starf kerfisstjóra í þróunar- og tölvudeild.

Hafnarfjarðarbær hefur verið leiðandi sveitarfélag við innleiðingu á stafrænum og tæknilegum lausnum og vill vera þar í fararbroddi. Þróunar- og tölvudeild fer með stjórnun og stefnumótun í tölvumálum bæjarins og tengdra stofnana, ásamt því að sjá um samhæfingu og eftirlit. Deildin sér um rekstur allra tölvukerfa og tryggir að meðhöndlun kerfa og gagna sé í samræmi við þarfir bæjarins og öryggiskröfur.

Kerfisstjóri tekur virkan þátt í rekstri og þróun tækniumhverfis bæjarins, veitir samstarfsfólki tæknilega leiðsögn og vinnur náið með ytri sérfræðingum. Starfið heyrir undir deildarstjóra þróunar- og tölvudeildar.

Við leitum að einstaklingi sem hefur mikla reynslu af Microsoft -umhverfi, skýjaþjónustum og nútímalegum rekstri upplýsingatækni, nýtur þess að leysa flókin tæknimál og getur forgangsraðað fjölbreyttum verkefnum þar sem öryggi, sjálfvirkni og góð notendaþjónusta fara saman. 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Kerfisstjórnun í Microsoft 365, Azure, Entra ID, Active Directory og Intune
  • Aðgangsstýring, tækjastýring og eftirfylgni með tæknilegum öryggisráðstöfunum
  • Uppsetning og rekstur kerfa á netþjónum í Azure og hjá hýsingaraðila, í samstarfi við ytri þjónustuaðila
  • Þátttaka í netrekstri, bilanagreiningu og breytingum með netráðgjafa bæjarins
  • Vinnur að fyrirbyggjandi öryggisráðstöfunum, öruggum kerfisstillingum og úrbótum vegna veikleika
  • Úrlausn flókinna þjónustubeiðna, tæknilegur stuðningur við samstarfsfólk og notendaþjónusta eftir þörfum
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Menntun í kerfisstjórnun, tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, tölvuverkfræði eða sambærilegri grein sem nýtist í starfi
  • Viðeigandi fagvottanir á sviði Microsoft -skýjaþjónustu, kerfisstjórnunar, aðgangsstýringar eða netrekstrar
  • Að lágmarki fimm ára reynsla af kerfisstjórnun í Microsoft 365, Entra ID og Active Directory, auk góðrar þekkingar á Azure, Intune, auðkenningu, réttindastýringu og tækjarekstri
  • Reynsla af sjálfstæðri úrlausn flókinna mála, tæknilegri leiðsögn og samstarfi við þjónustuaðila
  • Geta til að bregðast við breytingum og aðlagast breyttum aðstæðum, auk þess að nýta tækniframfarir til að bæta rekstur og þjónustu
  • Reynsla af umbótavinnu, einföldun ferla eða sjálfvirkni í rekstri upplýsingatækni er kostur
  • Mikil skipulagshæfni, sjálfstæði og geta til að forgangsraða og fylgja verkefnum eftir
  • Þjónustulund, góð samskiptahæfni og vilji til að miðla þekkingu
  • Góð íslenskukunnátta og færni í ensku til tæknilegra samskipta og upplýsingaöflunar

Nánari upplýsingar veitir Eymundur Björnsson, deildarstjóri þróunar- og tölvudeildar, eymundur@hafnarfjordur.is og Thelma Kristín Kvaran, thelma@intellecta.is.

Umsóknarfrestur er til og með 22. október 2026.

Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Kennari – Leikskólinn Tjarnarás

Umsóknarfrestur

18.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 05.10.2026

Umsóknarfrestur til: 18.10.2026

Tengiliður: Eygló Sif Halldórsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Leikskólinn Tjarnarás óskar eftir að ráða kennara í fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Leikskólinn Tjarnarás er fjögurra deilda leikskóli í Áslandinu, þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Helstu áherslur í starfi skólans er þátttaka, frumkvæði og sköpun barnanna þar sem frjálsi leikurinn er í fyrirrúmi. Stefna skólans tekur mið af Uppeldi til ábyrgðar og hefur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int), ETM Sjálfsmatsrammi

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • Samgöngustyrkur

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eygló Sif Halldórsdóttir, leikskólastjóri, eyglosif@hafnarfjordur.is eða Anna Svanhildur Daníelsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, annada@hafnarfjordur.is síma 5659710

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Umsjónarkennari á yngsta stigi – Hvaleyrarskóli

Umsóknarfrestur

15.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 30.09.2026

Umsóknarfrestur til: 15.10.2026

Tengiliður: kristinn@hvaleyrarskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hvaleyrarskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi út skólaárið 2026-2027. 

Ráðið er í stöðuna sem fyrst.

Í Hvaleyrarskóla eru um 350 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.

Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, byrjendalæsis og orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistarkennslu.

Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna umsjónarkennslu á yngsta stigi í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk með áherslu á teymisvinnu
  • Starfa eftir Aðalnámskrá grunnskóla
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni til að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Áhugi og/eða reynsla af umsjónarkennslu
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans
  • Lipurð og jákvæðni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
  • Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.

Umsóknarfrestur er til og með 15. október.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Ísat kennari – Hraunvallaskóli

Umsóknarfrestur

13.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 30.09.2026

Umsóknarfrestur til: 13.10.2026

Tengiliður: lars@hraunvallaskoli.is;adalbjorgs@hraunvallaskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna ÍSAT kennslu

Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.

Ísat kennari er hluti af Ísat/sérkennsluteymi skólans og vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara að námi barna sem hafa íslensku sem annað tungumál .  

Um er að ræða tímabundið starf út skólaárið 2026-2027

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast ÍSAT/sérkennslu í skólanum.
  •  Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  •  Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800

Umsóknarfrestur er til og með 13. október 2026. Um er að ræða 50-100% starf tímabundið út skólaárið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Arnarhraun

Umsóknarfrestur

14.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 29.09.2026

Umsóknarfrestur til: 14.10.2026

Tengiliður: arorab@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann á búsetukjarna fyrir fatlað fólk, sem staðsettur er miðsvæðis í bænum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi 60% framtíðarstarf í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúa stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til félagslegrar virkni og þátttöku í samfélaginu
  • Sinna heimilisstörfum
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Áróra Huld Bjarnadóttir, forstöðumaður í síma: 585-5769, netfang: arorab@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur 14. október 2026. 

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot – Víðistaðaskóli

Umsóknarfrestur

08.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 24.09.2026

Umsóknarfrestur til: 08.10.2026

Tengiliður: Margrét Rebekka Valgarðsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50% starf í frístundaheimilinu Hraunkoti.

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1.–4. bekk farið í frístundaheimilið Hraunkot. Þar sem boðið er upp á fjölbreytt tómstundastarf til kl.16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi
  • Stuðlar að velferð ungmenna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum kostur
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsramma (coe.int)

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veita Margrét Rebekka Valgarðsdóttir, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar Víðistaðaskóla, í síma 664-5876 eða í gegnum netfangið margretr@vidistadaskoli.is og Arnór Heiðarsson arnor@vidistadaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2026.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Erluás

Umsóknarfrestur

08.10.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 24.09.2026

Umsóknarfrestur til: 08.10.2026

Tengiliður: hrundb@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan starfsmann til starfa við þjónustu á heimili fyrir fatlað fólk.

Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi.

Í boði er spennandi og fjölbreytt starf í vaktavinnu. Um er að ræða 80–100% starfshlutfall. Viðkomandi þarf að geta unnið dag-, kvöld- ,nætur- og helgarvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall  ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Ökuréttindi skilyrði
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað 

Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá og kynningarbréf.  

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrund Brynjólfsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið hrundb@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5764.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Afleysingastörf – Málefni fatlaðra

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.

Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.

Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.