Hafnarfjörður
  • Þjónusta
    Close sub menu button
    • Íþróttir og útivera

      Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.

      • Göngu- og hjólaleiðir
      • Íþróttafélög
      • Íþróttir og tómstundir
      • Leik- og boltavellir
      • Matjurtagarðar
      • Sumarnámskeið
      • Sundlaugar
    • Skóli og frístundastarf

      Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.

      • Dagforeldrar
      • Félagsmiðstöðvar
      • Frístundaheimili
      • Frístundastyrkur
      • Frístundaakstur
      • Grunnskólar
      • Heimgreiðslur
      • Leikskólar
      • Menntastefna
      • Tónlistarskólar
      • Ungmenni
    • Umhverfi og samgöngur

      Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.

      • Dýr
      • Hávaði
      • Hreinsun og umhirða
      • Nágranna­varsla
      • Sorphirða
      • Strætó
      • Veðrið í bænum
      • Veitur
      • Þjónustumiðstöð
    • Velferð

      Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.

      • Barnavernd
      • Eldra fólk
      • Fólk með fötlun
      • Félagsleg úrræði
      • Fjölmenning
    • Farsæld barna

      Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.

    • Þjónustuver

      Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.

  • Mannlíf
    Close sub menu button
    • Menning og listir

      Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.

      • Árlegir viðburðir
      • Bókasafn
      • Byggðasafn
      • Bæjarbíó
      • Bæjarlistamaður
      • Hafnarborg
      • Menningarstyrkir
      • Kórsjóður Hafnarfjarðar
    • Ferðaþjónusta

      Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.

      • Gististaðir
      • Tjaldsvæði
      • Upplýsingamiðstöð
    • Heilsubærinn

      Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.

      • Íþróttafólk ársins
      • Áhugaverðir staðir
      • Frístundastyrkir barna
      • Frístundastyrkir eldra fólks
      • Göngu- og hjólaleiðir
      • Íþróttafélög
      • Leik- og boltavellir
      • Sundlaugar
      • Sumarnámskeið
      • Veðrið í bænum
    • Viðburðir

      Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.

    • Menningararfur

      Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.

      • Álfa- og víkingabær
      • Brandarabærinn
      • Jólabærinn
      • Menningarbærinn
      • Saga Hafnarfjarðar
      • Vinabærinn
  • Framkvæmdir
    Close sub menu button
    • Byggingarmál

      Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.

      • Byggingarmál
      • Fyrirspurnir og viðtöl
      • Eyðublöð byggingarmála
      • Leiðbeiningar um rafræn skil gagna byggingarmála
      • Fasteignagjöld
    • Kort af bænum

      Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.

    • Lausar lóðir

      Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.

      • Atvinnuhúsnæði
      • Hesthús
      • Íbúðarhúsnæði
      • Lóðarleigusamningar
    • Skipulag

      Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.

      • Aðalskipulag
      • Framkvæmdir
      • Skipulag í kynningu
      • Uppbygging
      • Samgöngusáttmáli
    • Graftarleyfi

      Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar hefur eftirlit með öllum greftri og framkvæmdum í landi bæjarins.

  • Stjórnsýsla
    Close sub menu button
    • Atvinna og mannauður

      Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.

      • Laus störf
      • Símatími
      • Starfsfólk
      • Störf í leikskólum
      • Störf í tómstundamiðstöðvum
      • Vinnuskólinn
      • Starfsvottorð
    • Bæjarstjórn

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu. 

      • Bæjarstjóri
      • Bæjarstjórn
      • Fundur í beinni
      • Ráð og nefndir
    • Fundargerðir

      Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.

    • Rekstur og tölfræði

      Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.

      • Ársreikningar
      • Fjárhagsáætlanir
      • Húsnæðismál
      • Íbúakannanir
      • Opið bókhald
      • Umferð um vefinn
      • Vitinn hönnunarkerfi
    • Gjaldskrár

      Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.

    • Stjórnkerfi

      Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.

      • Barnvænt sveitarfélag
      • Hafðu áhrif
      • Heildarstefna til 2035
      • Neyðarnúmer
      • Neyðarstjórn
      • Persónuvernd
      • Ráð og nefndir
      • Stefnur og samþykktir
      • Skipurit
      • Styrkir
      • Útboð
    • Fréttir og skýrslur

      Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.

      • Fjölmiðlatorg
      • Fréttir og tilkynningar
      • Reglur um samfélagsmiðla
      • Skýrslur
      • Verkefnasögur
      • Útgefið efni
Mínar síður
is
  • English
Toggle Mobile Menu
Vinnuskóli Hafnarfjarðar
  • Störf hjá Hafnarfjarðarbæ
  • Störf í leikskólum
  • Störf í tómstundamiðstöðvum
  • Mannauðsstefna
  • Jafnréttis- og mannréttindastefna
  • Hlunnindi
  • Nýtt starfsfólk hjá Hafnarfjarðarbæ

Vinnuskóli Hafnarfjarðar

Skoða öll störf
Vinnuskóli Hafnarfjarðar Collapse icon
Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Verkstjóri á skrifstofu Vinnuskóla Hafnarfjarðar 11.03.2026
Verkstjóri í Þjónustumiðstöð Vinnuskóla Hafnarfjarðar 11.03.2026
Verkstjóri á vettvangi í Vinnuskóla Hafnarfjarðar 11.03.2026
Skapandi sumarstörf 29.03.2026
Ábendingagátt Aðstoð
  • Fundargerðir
  • Netspjall
  • Neyðarnúmer
Hafnarfjörður

Hafnarfjarðarbær

Strandgata 8–10

220 Hafnarfjörður

Kennitala: 590169-7579

  • facebook
  • instagram

Hafðu samband

Opið mán.–fimmtudaga: 08:00–16.00

Opið föstudaga: 08:00–14:00

585 5500

hafnarfjordur@hafnarfjordur.is

  • facebook
  • instagram

Flýtileiðir

  • Ábendingagátt
  • Laus störf
  • Betri Hafnarfjörður
  • Gjaldskrár
  • Starfsfólk
  • Neyðarnúmer

Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk – Arnarhraun

Umsóknarfrestur

22.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 18.02.2026

Umsóknarfrestur til: 22.03.2026

Tengiliður: arorab@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar




<br />


Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn til sumarafleysinga á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er á Arnarhrauni í Hafnarfirði 

Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg verkefni eftir því sem við á og þörf krefur
  • Vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Styðja íbúa til þátttöku í samfélaginu
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Þekking á hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn er kostur
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi

  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Áróra Huld Bjarnadóttir forstöðumaður í síma 585-5769 eða á netfanginu arorab@hafnarfjordur.is 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins


Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli

Umsóknarfrestur

13.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 27.02.2026

Umsóknarfrestur til: 13.03.2026

Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum kennurum á yngsta stigi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna kennslu og umsjón í yngri deild
  • Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótum á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Haldgóð þekking á lestrarkennslu og kennslufræði námsgreina í yngstu deild
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.

Umsóknarfrestur er til og með 13. mars. 2026

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli

Umsóknarfrestur

13.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 27.02.2026

Umsóknarfrestur til: 13.03.2026

Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum kennurum á miðstigi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna kennslu og umsjón í miðdeild
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á miðstigi og lestrarkennslu
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Ráðið er í stöðuna frá 1.ágúst 2026.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar gefa Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.

Umsóknarfrestur er til og með 13. mars. 2026

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Heimilisfræðikennari fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli

Umsóknarfrestur

13.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 27.02.2026

Umsóknarfrestur til: 13.03.2026

Tengiliður: ingibjorg@skardshlidarskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum heimilisfræðikennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk, í vetur eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast heimilisfræði kennslu í 1. – 10. bekk
  • Sjá um innkaup fyrir kennsluna og umsjón með heimilisfræðistofu
  • Taka þátt í uppbyggingu á nýjum skóla í samvinnu við stjórnendur
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar – og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Fagþekking á sviði heimilisfræði og heilsueflingar
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.

Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Íþróttakennari – Skarðshlíðarskóli

Umsóknarfrestur

13.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 27.02.2026

Umsóknarfrestur til: 13.03.2026

Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum íþróttakennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur!

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. .

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna íþróttia- og sundkennslu fyriir skólann
  • Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótum á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Fullgild réttindi til sundkennslu
  • Haldgóð þekking á kennslufræði íþrótta
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góða íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026

Nánari upplýsingar gefa Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.

Umsóknarfrestur er til og með 13.mars 2026.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Kennsla í textíl – Skarðshlíðarskóli

Umsóknarfrestur

13.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 27.02.2026

Umsóknarfrestur til: 13.03.2026

Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum textílkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í textíl 
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Taka þátt í uppbyggingu á nýju skólasamfélagi í samvinnu við stjórnendur
  • Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólunum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði textílkennslu
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góða íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.

Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla

Umsóknarfrestur

31.08.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 01.03.2026

Umsóknarfrestur til: 31.08.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.

Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.

Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Afleysingastörf í leikskólum

Umsóknarfrestur

31.08.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 01.03.2026

Umsóknarfrestur til: 31.08.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.

Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Önnur tímabundin afleysingastörf

Umsóknarfrestur

31.08.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 01.03.2026

Umsóknarfrestur til: 31.08.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.

Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Afleysingastörf – Málefni fatlaðra

Umsóknarfrestur

31.08.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 01.03.2026

Umsóknarfrestur til: 31.08.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.

Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.

Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Aðstoðardeildarstjóri tómstundamiðstöðvar – Lækjarskóli

Umsóknarfrestur

16.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 02.03.2026

Umsóknarfrestur til: 16.03.2026

Tengiliður: Bjarnveig Dagsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Lækjarskóli óskar eftir að ráða drífandi og kraftmikinn aðstoðardeildarstjóra í 100% starf í tómstundastarf skólans.

Markmið tómstundamiðstöðvarinnar er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.

Aðstoðardeildarstjóri tekur þátt í að stýra daglegri starfsemi félagsmiðstöðvar og frístundarheimilis og sjá til þess að uppeldisleg og fagleg vinnubrögð séu ráðandi í öllu starfi deildarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón og ábyrgð með starfsemi tómstundamiðstöðvar ásamt deildarstjóra með áherslu á 1.-4.bekk.
  • Sinnir forvarna- og fræðslustarfi um ýmis málefni sem tengjast börnum og ungmennum
  • Skipulagning og framkvæmd verkefna og viðburða
  • Sér til þess að upplýsingaflæði til barna, foreldra og samstarfsaðila sé virkt
  • Stýrir verkaskiptingu milli starfsmanna og veitir leiðsögn um framkvæmd starfseminnar
  • Stuðlar að góðu samstarfi við ýmsa aðila, s.s. foreldra, skóla, félagsþjónustu, aðrar félagsmiðstöðvar og frístundaheimili og aðrar stofnanir og samtök sem vinna að málefnum barna og unglinga
  • Starfar með nemendum með sértækan vanda
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Bakkalár háskólapróf í tómstunda- og félagsmálafræði, háskólapróf á sviði uppeldis og menntunarfræða, eða annað háskólanám sem nýtist í starfi
  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum og ungmennum
  • Áhugi á málefnum barna og forvörnum
  • Þekkingu á að vinna með hópastarf
  • Reynsla af þverfaglegu samstarfi
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið í frístundaheimili eða félagsmiðstöð
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
  • Samskipta- og samstarfshæfni

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af frístundagjöldum
  • Forgangur í frístundaheimili
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarnveig Dagsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar í gegnum netfangið bjarnveig@laekjarskoli.is eða Björgvin Sigurbjörnsson aðstoðarskólastjóri í gegnum netfangið bjorgvin@laekjarskoli.is  

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Ráðið er í stöðuna frá 1. apríl

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika

Kennarar – Leikskólinn Stekkjarás

Umsóknarfrestur

16.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 02.03.2026

Umsóknarfrestur til: 16.03.2026

Tengiliður: Harpa Kolbeinsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Leikskólinn Stekkjarás auglýsir eftir kennara í 100% starf.

Leikskólinn Stekkjarás er átta deilda og er staðsettur í Áslandshverfinu. Leikskólinn starfar eftir aðferðum Reggio Emilia og einkunnarorð leikskólans eru „Hugmyndir barnsins – verkefni dagsins“

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir leikskólastjóri, harpako@hafnarfjordur.is eða í síma 517-5920 og Michelle Sonia Horne, aðstoðarleikskólastjóri, michelleho@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Sumarstarf í skammtímadvöl fyrir fötluð börn – Svöluhraun

Umsóknarfrestur

16.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 02.03.2026

Umsóknarfrestur til: 16.03.2026

Tengiliður: Guðrún Halldórsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða glaðlynda og áhugasama starfsmenn í skammtímadvöl fyrir fötluð börn. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar. Við leitum eftir starsfólki sem getur hafið störf í kringum 1. júní. Starfshlutfall eftir samkomulagi.

Unnið er eftir hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn. 

Skammtímadvöl er fyrir fötluð börn og ungmenni og er misjafnt hvað þau dvelja lengi í senn. Hlutverk með skammtímadvöl er að veita börnum og fjölskyldum þeirra stuðning. Á meðan á dvöl stendur fá börnin og ungmennin aðstoð við sín daglegu verkefni, njóta umönnunar og afþreyingar. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoða fötluð börn við athafnir daglegs lífs og umönnun
  • Skipuleggja afþreyingu og virkja börn og ungmenni til ýmissa tómstunda. 
  • Samskipti við foreldra
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Einlægur áhugi á málefnum fatlaðra barna
  • Mikilvægir eiginleikar eru sveigjanleiki, samviskusemi, lipurð og jákvætt viðhorf
  • Hugmyndaauðgi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Starfið krefst góðs líkamslegs atgervis

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Halldórsdóttir forstöðumaður í síma: 585-5768, netfang: gudrunha@hafnarfjordur.is 

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg – Setbergsskóli

Umsóknarfrestur

16.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 02.03.2026

Umsóknarfrestur til: 16.03.2026

Tengiliður: robertg@setbergsskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Setbergsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliðum með fjölbreytta hæfni og áhuga á að vinna með börnum á frístundaheimilinu Krakkabergi skólaárið 2025 – 2026. Starfshlutfall er 30-50%. Vinnutími er frá kl 13:00-16:36, alla virka daga. 

Frístundaheimilið er fyrir nemendur í 1. – 4. bekk Setbergsskóla. Þar gefst færi á að lengja viðveru barna eftir að skólastarfi lýkur.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi
  • Stuðlar að velferð ungmenna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum kostur
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta, að lágmarki A2 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veita Róbert Gíslason, deildarstjóri tómstundastarfs Setbergsskóla, robertg@setbergsskoli.is og María Pálmadóttir, skólastjóri, maria@setbergsskoli.is.

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Skrifstofustjóri – Setbergsskóli

Umsóknarfrestur

13.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 27.02.2026

Umsóknarfrestur til: 13.03.2026

Tengiliður: maria@setbergsskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendum að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi. Skrifstofustjóri starfar sem aðstoðarmaður skólastjóra um almennan rekstur skólans og starfar náið með stjórnendateymi skólans.

Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. 

Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. 

Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu og ber ábyrgð á samskiptum skóla við þá sem eiga erindi við hana.
  • Umsýsla ráðningasamninga og samskipti við launadeild.
  • Umsjón með vinnustund og starfsmannahaldi.
  • Umsjón með skráningu nemenda, forfallaskráningu og skipulagi forfalla.
  • Sér um skipulag og stjórnun skjalavörslu.
  • Sér um pantanir á ýmsum gögnum sem nauðsynleg eru rekstri skólans. 
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (B.A./B.S./B.Ed gráða).
  • Áhugi á mannauðstengdum verkefnum.
  • Mjög góð þekking og reynsla af skrifstofustörfum.
  • Mjög góð tölvukunnátta.
  • Þekking á Kjarna og Vinnustund kostur. 
  • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi.
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar.
  • Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi.
  • Lipurð í samskiptum og samstarfshæfni.
  • Stundvísi og samviskusemi.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð.

Greinargóð ferliskrá fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri Setbergsskóla, í síma 664-5880, maria@setbergsskoli.is. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Yfirþroskaþjálfi/Deildarstjóri á heimili fyrir fatlað fólk – Smárahvammur

Umsóknarfrestur

16.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 27.02.2026

Umsóknarfrestur til: 16.03.2026

Tengiliður: ingibjorgo@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan deildarstjóra í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks í utan- og innankjarna Um er að ræða 100% dagvinnu. Við óskum eftir einstaklingi sem hefur drífandi áhuga á starfi sínu og er öðrum starfsmönnum góð fyrirmynd. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á réttindi fatlaðs fólks. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á skipulagningu, samhæfingu, áætlanagerð, skýrslugerð, upplýsingamiðlun, ráðgjöf og fræðslu
  • Veitir starfsmönnum fræðslu og handleiðslu
  • Framfylgir hlutverki og markmiðum starfsstöðvar
  • Veitir fötluðu fólki stuðning og ráðgjöf við athafnir daglegs lífs
  • Tekur virkan þátt í þróunarvinnu
  • Umsjón með bókhaldi
  • Er staðgengill forstöðumanns í hans fjarveru
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni   

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þroskaþjálfun eða önnur sambærileg háskólamenntun á viðurkenndu fagsviði sem nýtist í starfi, s.s. iðjuþjálfun, sálfræði eða félagsráðgjöf
  • Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki
  • Þekking á lögum sem snúa að málaflokknum
  • Stjórnunarreynsla æskileg
  • Reynsla og þekking af teymisvinnu æskileg
  • Góð tölvukunnátta
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Faglegur metnaður í starfi og áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað 
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópsku tungumálaramma
  • Ökuréttindi skilyrði 
  • Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð 

 

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið ingibjorgo@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5765.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026. Ráðið er í stöðuna frá 13.apríl 2026. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk – Berjahlíð

Umsóknarfrestur

25.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 04.03.2026

Umsóknarfrestur til: 25.03.2026

Tengiliður: Kristín Anna Th. Jensdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn til sumarafleysinga í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Berjahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Spennandi og skemmtilegt starf með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Starfshlutfall er 60-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. 

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  •  Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað 
  • Ökuréttindi

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Anna Th. Jensdóttir forstöðumaður í síma 585-5761 eða á netfanginu kristinj@hafnarfjordur.is

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Sumarstarfsmaður á skammtímadvöl – Hnotuberg

Umsóknarfrestur

19.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 05.03.2026

Umsóknarfrestur til: 19.03.2026

Tengiliður: Hrönn Harðardóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Ertu að leita þér að skemmtilegu og fjölbreyttu starfi í sumar? Þá ættir þú að skoða þessa auglýsingu !

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn til sumarafleysinga á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenn, staðsett í Setbergshverfi.

Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80%-90%, eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir áætlunum og verklagsreglum
  • Leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði fatlaðs fólks og stuðla að valdeflingu þeirra
  • Hvetja og styðja þjónustunotendur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni
  • Almenn heimilisstörf
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, samviskusemi og geta til að vinna undir álagi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og ábyrgð i í starfi
  • Geta til að tileinka sér nýjar nálganir og samræmd vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta, að lágmarki A2 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma 565-2545 netfang: hronnha@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2026

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Steinahlíð

Umsóknarfrestur

20.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 27.02.2026

Umsóknarfrestur til: 20.03.2026

Tengiliður: kristino@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Sumarstarf á  heimili fyrir fatlað fólk – Steinahlíð 

 

Hafnarfjarðarbær óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum starfsmönnum til sumarafleysinga á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

 

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar, morgun, kvöld og næturvaktir. Starfshlutfall  60-90% eða eftir samkomulagi.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

·        Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs

·        Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði

·        Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum

·        Styðja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum

·        Almenn heimilisstörf

·        Samskipti við ýmsa þjónustuaðila

·        Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

 

·        Reynsla af sambærilegum störfum æskileg

·        Þjónustulund og jákvæðni í starfi

·        Hæfni í mannlegum samskiptum

·        Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

·        Framtakssemi og samviskusemi

·        Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi

·        Bílpróf

·        Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

 

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hreint sakavottorð er skilyrði.  

Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Ólafsdóttir forstöðumaður,  í síma 664-5730, netfang: kristino@hafnarfjordur.is 

 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

 

Umsóknarfrestur er til og með 20. mars. 2026

 

Með umsókn skal fylgja kynningarbréf ásamt greinargóðri ferilskrá.

 

 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk- Smárahvammur

Umsóknarfrestur

16.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 27.02.2026

Umsóknarfrestur til: 16.03.2026

Tengiliður: ingibjorgo@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði sem best.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Um er að ræða 60%-  70% starf og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.  

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Sinna heimilisstörfum
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópsku tungumálaramma
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Ökuréttindi skilyrði  
  • Aðgengi að ökutæki skilyrði
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað 

Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.  

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið ingibjorgo@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5765.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Starfsmaður í einstaklingsstuðningi – tímavinna

Umsóknarfrestur

31.05.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 12.01.2026

Umsóknarfrestur til: 31.05.2026

Tengiliður: ernaar@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur. Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. 

Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Góð enskukunnátta 

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.

Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500. 

Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Sumarstarf – frístundastarf fyrir fötluð börn og ungmenni – Kletturinn

Umsóknarfrestur

13.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 13.02.2026

Umsóknarfrestur til: 13.03.2026

Tengiliður: Auður Björk Kvaran

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir jákvæðum og metnaðarfullum sumarstarfsmanni í Klettinn. Kletturinn er frístunda, – og virkniúrræði fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 10–20 ára. Um er að ræða 100% starf í aldursskiptum hópum þar sem boðið er upp á fjölbreytta afþreyingu og stuðning við ungmenni í atvinnutengdum virkniúrræðum. 

Sumarstarfið hentar einstaklega vel þeim sem vilja starfa með börnum og ungmennum og taka þátt í skapandi og líflegu starfi. Markmiðið með starfinu er að þátttakendur fái tækifæri til að kynnast nýjum tómstundum, taki þátt í fjölbreyttum vinnuverkefnum og eflist félagslega.  

Vinnutími er alla virka daga frá kl. 8:00–16:00 eða 08:30-16:30. 

Helstu verkefni og ábyrgð 
• Vera jákvæð fyrirmynd og hafa uppbyggileg áhrif á börn og ungmenni í daglegu lífi. 
• Taka þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd fjölbreytts tómstundastarfs í samstarfi við starfsfólk og þátttakendur. 
• Skapa öruggt, virðingarfullt og jákvætt andrúmsloft, byggt á lýðræðislegum vinnubrögðum. 
• Veita þátttakendum stuðning við athafnir daglegs lífs, eftir þörfum hvers og eins. 
• Stuðla að sjálfstæði, félagsfærni og vellíðan einstaklinga í starfinu. 
• Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu eða eftir beiðni yfirmanns. 

Menntunar- og hæfniskröfur 
• Reynsla af starfi með börnum og unglingum. 
• Æskilegt er að hafa reynslu af starfi með fötluðum börnum eða ungmennum.  
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. 
• Góð samskipta- og samstarfshæfni. 
• Frumkvæði og jákvætt viðmót. 
• Íslenskukunnátta er skilyrði. 

Skilyrði 
• Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. 
• Hreint sakavottorð er skilyrði. 

Launakjör 
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar. 

 
Frekari upplýsingar um starfið veita: 
Auður Björk Kvaran, audurk@hafnarfjordur.is 
Sandra Björk Halldórsdóttir, sandrabjork@hafnarfjordur.is 
Erna Sóley Stefánsdóttir, ernas@hafnarfjordur.is 
Sími: 565-5100 

 
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026. 
Umsókn skal fylgja ferilskrá. 

Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsin 

 

Skapandi sumarstörf

Umsóknarfrestur

29.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 17.02.2026

Umsóknarfrestur til: 29.03.2026

Tengiliður: Bryndís Steina Friðgeirsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Í sumar býðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára (fæddir 2001-2008) að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Einstaklingar og hópar fá tækifæri til að starfa í sumar við að sinna skapandi verkefnum og kynna þau fyrir bæjarbúum og gestum yfir sumartímann. Skapandi sumarstörf, sem rekin eru sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar og Nýsköpunarseturs, er ætlað sem stökkpallur fyrir ungt listafólk til að þróa sig áfram í sinni list, þjálfa sig í að vinna sjálfstætt og koma listsköpun sinni á framfæri.  

Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum 18-25 ára. Við val á verkefnum verður meðal annars tekið tillit til raunhæfni og frumleika verkefnisins, fjárhagsáætlunar, fjölbreytni verkefna, kynjahlutfalli umsækjenda og gæði umsókna. Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Hægt er að fá aðstoð við skrif umsóknar hjá starfsmönnum Nýsköpunarseturs í gegnum netfangið nyskopunarsetur@hafnarfjordur.is.  

 Helstu verkefni og ábyrgð er að:

  • Vinna eftir eigin framkvæmdar- og verkáætlun
  • Starfsfólk sé virkt á samfélagsmiðlum og að kynna verkefnið
  • Vera í samstarfi og samráði við aðra þátttakendur í Skapandi sumarstörfum
  • Halda vinnudagbók og mæta á alla fundi sem starfsmenn Nýsköpunarseturs skipuleggja
  • Koma fram á skipulögðum viðburðum á vegum Hafnarfjarðarbæjar líkt og 17. júní o.fl.
  • Taka virkan þátt í uppskerudögum Skapandi sumarstarfa haustið 2026 eða með einum eða öðrum hætti sýna afrakstur og útkomu verkefnis að kostnaðarlausu fyrir bæjarbúa.

Senda þarf neðangreindar upplýsingar og fylgigögn með sem viðhengi með umsókn:

  • Greinargóð lýsing á verkefninu, umfangi þess og markmiðum
  • Lýsingu á hugmynd fyrir þátttöku á 17. Júní. 
  • Tíma- og verkáætlun
  • Fjárhagsáætlun
  • Ef um hópverkefni er að ræða, þarf hver og einn aðstandandi verkefnisins að sækja um í gegnum umsóknagátt
  • Upplýsingar um alla aðstandendur verkefnisins og tilgreina einn tengilið verkefnisins

Umsóknir sem vantar þessar upplýsingar eru ekki metnar sem gildar og koma því ekki til greina þegar unnið er úr umsóknum. Sniðmát af umbeðnum skjölum má finna hér.

Umsóknarferli og vinnutímabil 

Umsóknarferli 

  • 17. febrúar– umsóknir opna 

  • 29. mars- umsóknir lokast  

  • 13-17. apríl– farið er yfir umsóknir og umsækjendur með gildar umsóknir boðið í viðtal 

  • Lok apríl og byrjun maí– svör berast 

  •  

Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2026.  

Vinnutímabil stendur yfir frá júní til júlí. Starfsfólk byrjar vinnutímabil á undirbúningi fyrir þátttöku í 17.júní og vinnur síðan sjálfstætt samkvæmt vinnuáætlun að verki þar til undirbúningur fyrir lokahófi- og sýningu á verki tekur við.  

Heildartímafjöldi eru 208 tímar og gert ráð fyrir að verkefnið sé unnið í 7 vikur á tímabilinu júní-júlí.  

Athugið að aðeins er um laun að ræða en ekki önnur fjármögnun á verkefninu. Verkefni standa straum af öllum tilfallandi framleiðslukostnaði sjálf.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Hlíf stéttarfélag.

Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar, forstöðumaður Nýsköpunarseturs og starfsmenn Nýsköpunarseturs sitja í valnefnd sem skilar niðurstöðum fyrir 17. apríl 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Steina Friðgeirsdóttir, forstöðumaður Nýsköpunarseturs, í gegnum tölvupóstinn bryndisf@hafnarfjordur.is, eða Þorbjörg Signý Ágústsson, umsjónarmann Skapandi Sumarstarfa, í gegnum tölvupóstinn thorbjorgag@hafnarfjordur.is.  

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Verkstjóri á vettvangi í Vinnuskóla Hafnarfjarðar

Umsóknarfrestur

11.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 18.02.2026

Umsóknarfrestur til: 11.03.2026

Tengiliður: tinnas@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir verkstjóra í Vinnuskóla Hafnarfjarðar 

Vinnuskólinn óskar eftir metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingum til að gegna stöðu verkstjóra á vettvangi í sumar. Starfið er tímabundið og varir í 2–4 mánuði á tímabilinu maí/júní til júlí/ágúst.

Um er að ræða skemmtilegt starf með ungu fólki. Verkstjórar Vinnuskólans eru næstu yfirmenn flokkstjóra sem leiða hópa ungmenna í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast umhirðu bæjarins og tiltekt. Vinnuskólinn hefur um 30 flokkstjóra yfir sumarið og veitir rúmlega 1000 ungmennum á aldrinum 14–17 ára sumarvinnu og starfsreynslu. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulagning vinnu í Vinnuskólanum
  • Almennt utanumhald og stuðningur við störf flokkstjóra Vinnuskólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Þekking á verkstjórn og garðyrkjustörfum kostur
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Almenn tölvukunnátta

Ef þú hefur áhuga á að vinna í líflegu og gefandi starfsumhverfi þar sem þú færð tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á unga einstaklinga, þá hvetjum við þig til að sækja um!

Gerð er krafa um að viðkomandi sé með hreint sakavottorð. Umsækjendur skulu vera 21 árs eða eldri.

Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2026

Nánari upplýsingar um starfið veitir Tinna Rós Steinsdóttir, rekstrarstjóri íþrótta- og tómstundamála, tinnas@hafnarfjordur.is 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Verkstjóri á skrifstofu Vinnuskóla Hafnarfjarðar

Umsóknarfrestur

11.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 18.02.2026

Umsóknarfrestur til: 11.03.2026

Tengiliður: tinnas@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir tveimur starfsmönnum á skrifstofu Vinnuskóla Hafnarfjarðar í sumarstarf. Hjá okkur er mikið að gera á vorin og sumrin og því þurfum við að fá til liðs við okkur drífandi einstaklinga til að sinna skrifstofustarfi tímabundið í sumar.

Í boði er fjölbreytt starf fyrir einstakling sem er vel skipulagður og úrræðagóður.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tímaskráningar
  • Skráning í ráðningarkerfi
  • Almenn skrifstofustörf
  • Símsvörun    
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af skrifstofustörfum kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð hæfni í samskiptum
  • Hröð og nákvæm vinnubrögð
  • Mjög góð tölvukunnátta

Gerð er krafa um að viðkomandi sé með hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2026

Nánari upplýsingar um starfið veitir Tinna Rós Steinsdóttir, rekstrarstjóri íþrótta- og tómstundamála, tinnas@hafnarfjordur.is 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Verkstjóri í Þjónustumiðstöð Vinnuskóla Hafnarfjarðar

Umsóknarfrestur

11.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 18.02.2026

Umsóknarfrestur til: 11.03.2026

Tengiliður: tinnas@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær auglýsir störf verkstjóra í Vinnuskóla og Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar 

Vinnuskólinn óskar eftir metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingum til að gegna stöðu verkstjóra í sumar. Starfið er tímabundið og varir í 2–4 mánuði á tímabilinu maí/júní til júlí/ágúst.

Um er að ræða skemmtilegt starf með ungu fólki. Verkstjórar Vinnuskólans eru næstu yfirmenn flokkstjóra sem leiða unglingahópa í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast umhirðu bæjarins og tiltekt. Vinnuskólinn hefur um 30 flokkstjóra yfir sumarið og veitir rúmlega 1000 ungmennum á aldrinum 14–17 ára sumarvinnu og starfsreynslu. Næsti yfirmaður verkstjóra í Þjónustumiðstöð er Garðyrkjustjóri hjá verkstjórum í Þjónustumiðstöð.

Umsækjendur skulu vera 21 árs eða eldri.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulagning vinnu
  • Almennt utanumhald og stuðningur við störf flokkstjóra Vinnuskólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Þekking á verkstjórn og garðyrkjustörfum kostur
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Almenn tölvukunnátta

Eftirfarandi störf eru í boði í sumar:

Verkstjóri slátturhóps í Þjónustumiðstöð

Auglýst er eftir tveimur verkstjórum til sumarstarfa við verkstjórn slátturhóps Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjum maí fram í ágúst. Um er að ræða útistarf. Verkstjóri bera ábyrgð á sínum slátturhóp, stýrir verkefnum á verkstað, gerir vinnuskýrslur fyrir hópinn og hefur umsjón með vélum og búnaði sláttuhópa.

Verkstjóri viðhaldshóps í Þjónustumiðstöð

Auglýst er eftir einum verkstjóra til sumarstarfa við verkstjórn viðhaldshóps Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjum maí fram í ágúst. Um er að ræða útistarf. Verkstjóri bera ábyrgð á sínum hóp, stýrir verkefnum á verkstað og gerir vinnuskýrslur fyrir hópinn.

Verkstjóri blómahóps í Þjónustumiðstöð

Auglýst er eftir verkstjóra til sumarstarfa við verkstjórn blómahóps Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjum maí fram í ágúst. Um er að ræða útistarf. Verkstjóri ber ábyrgð á sínum hóp, stýrir verkefnum á verkstað og gerir vinnuskýrslur fyrir hópinn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.

Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2026

Ef þú hefur áhuga á að vinna í líflegu og gefandi starfsumhverfi þar sem þú færð tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á unga einstaklinga, þá hvetjum við þig til að sækja um!

Nánari upplýsingar um starfið veitir Tinna Rós Steinsdóttir, rekstrarstjóri íþrótta- og tómstundamála, tinnas@hafnarfjordur.is 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Forfallakennari – Hraunvallaskóli

Umsóknarfrestur

18.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 04.03.2026

Umsóknarfrestur til: 18.03.2026

Tengiliður: Lars Jóhann Imsland Hilmarsson

Deila starfi

Skoða nánar

Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu á yngsta, mið- og unglingastigi og við sérdeildir skólans.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
  • Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans

Mennunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans. 

Starfshlutfall er eftir samkomulagi. Óskað er eftir að starfsmaður hefji störf sem fyrst í tilfallandi forföll.

Nánari upplýsingar um starfið veita Lars Jóhann Imsland skólastjóri í síma 590 2800, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri adalbjorgs@hraunvallaskoli.is 

Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 18. mars 2026.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Erluás

Umsóknarfrestur

08.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 20.02.2026

Umsóknarfrestur til: 08.03.2026

Tengiliður: Hrund Brynjólfsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Sumarstarf á  heimili fyrir fatlað fólk – Erluás

 

Hafnarfjarðarbær óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum starfsmönnum til sumarafleysinga á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

 

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar, morgun, kvöld og næturvaktir. Starfshlutfall  80-100% eða eftir samkomulagi.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

·        Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs

·        Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði

·        Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum

·        Styðja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum

·        Almenn heimilisstörf

·        Samskipti við ýmsa þjónustuaðila

·        Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

 

·        Reynsla af sambærilegum störfum æskileg

·        Þjónustulund og jákvæðni í starfi

·        Hæfni í mannlegum samskiptum

·        Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

·        Framtakssemi og samviskusemi

·        Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi

·        Bílpróf

·        Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

 

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hreint sakavottorð er skilyrði.  

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrund Brynjólfsdóttir forstöðuþroskaþjálfi,  í síma 664-5720, netfang: hrundb@hafnarfjordur.is 

 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

 

Umsóknarfrestur er til og með 8. mars. 2026

 

Með umsókn skal fylgja kynningarbréf ásamt greinargóðri ferilskrá.

 

 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

Hafnsögumaður/skipstjóri – Hafnarfjarðarhöfn

Umsóknarfrestur

13.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 23.02.2026

Umsóknarfrestur til: 13.03.2026

Tengiliður: Lúðvík Geirsson

Deila starfi

Skoða nánar

 

Hafnarfjarðarhöfn óskar eftir að ráða til starfa hafnsögumann/skipstjóra í 100% starf.  Starfið felst í leið- og hafnsögu skipa, skipstjórn og annarri hafnarþjónustu, móttöku og þjónustu skipa í Hafnarfjarðarhöfn og Straumsvík.  Daglegur vinnutími er frá 07.30 – 15.30 virka daga, auk þess sem unnið er á bakvöktum, kvöld, nætur og helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hafnsaga skipa til og frá Hafnarfjarðarhöfn/Straumsvík og einnig aðstoð við nærliggjandi hafnir s.s. Helguvík.
  • Skipstjórn á hafnsögubátum hafnarinnar, Hamri og Þrótti.
  • Sólarhringsvaktstjórn á 3ja vikna fresti. Stjórn með daglegum störfum í samráði við hafnarstjóra og vakthafandi verkstjóra hafnarstarfsmanna.
  • Ábyrgð á sólarhringsvaktsíma hafnarinnar á hafnsöguvakt og önnur stjórnunarstörf í umboði hafnarstjóra.
  • Verndarfulltrúi í siglingavernd á öryggissvæði hafnarinnar – samskipti við Samgöngustofu og aðrar stofnanir sem málið snertir.
  • Stjórnar umferð skipa um höfnina og ákveður legustað þeirra og færslur innan hafnar í umboði hafnarstjóra í samráði við skipstjórnendur og umboðsaðila/flutningaaðila.
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Skipstjórnarréttindi D ( 3 stig)
  • Víðtæk reynsla af skipstjórn
  • Víðtæk þekking á skipaflota og sjávarútvegi
  • Góð reynsla af stjórnun og stjórnunarhæfileikar
  • Frumkvæði, skipulag og sjálfstæð vinnubrögð
  • Almenn ökuréttind
  • Námskeið í Slysavarnarskóla sjómanna
  • Góð þjónustulund, samskipta- og samstarfshæfni
  • Geta til að vinna undir álagi og takast á við krefjandi aðstæður
  • Gott líkamlegt atgervi/hreysti til að takast á við krefjandi aðstæður/verkefni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Almenn góð tölvukunnátta

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag skipstjórnarmanna. Nánari upplýsingar veita Lúðvík Geirsson hafnarstjóri, ludvik@hafnarfjordur.is og Ágúst Ingi Sigurðsson yfirhafnsögumaður  í síma 414-2300.

Umsóknarfrestur um starfið er til og með 13. mars 2026. 

Þar sem í gildi eru ákvæði laga um hafnarvernd á hafnarsvæði Hafnarfjarðarhafnar þarf sakavottorð að fylgja með umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.

 

Sumarstarfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk – Drekavellir

Umsóknarfrestur

13.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 28.02.2026

Umsóknarfrestur til: 13.03.2026

Tengiliður: Berglind Brynjarsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. 

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar, með möguleika á fastráðningu í haust. Við leitum eftir starfsfólki sem getur hafið störf um miðjan maí. Starfshlutfall er 80 – 100 % starf í vaktavinnu. 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði 
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum 
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum 
  • Almenn heimilisstörf 
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila 
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg 
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks 
  • Íslenskukunnátta skilyrði 
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og samviskusemi 
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Starfið krefst góðs líkamlegs atgervis  
  • Ökuréttindi skilyrði  

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð. 

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.  

Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 544-2360, netfang: berglindbr@hafnarfjordur.is 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 13.mars 2026.

Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. 

Skóla- og frístundaliði í Skarðsel – Skarðshlíðarskóli

Umsóknarfrestur

10.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 24.02.2026

Umsóknarfrestur til: 10.03.2026

Tengiliður: ingibjorg@skardshlidarskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliða í 40 -50% starfshlutfall í Skarðsel sem er frístundaheimili Skarðshlíðarskóla

Frístundaheimilið er fyrir nemendur í 1. – 4. bekk Skarðshlíðarskóla en það er opið eftir að skóla lýkur til kl 16:30 alla virka daga.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi
  • Stuðlar að velferð ungmenna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta, að lágmarki A2 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar veita Fjóla Sigrún Sigurðardóttir deildarstjóri tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5823, fjolasig@skardshlidarskoli.is og Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871/ ingibjorg@skardshlidarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 10.mars 2026

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Sérkennari eða þroskaþjálfi – Leikskólinn Stekkjarás

Umsóknarfrestur

10.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 24.02.2026

Umsóknarfrestur til: 10.03.2026

Tengiliður: Harpa Kolbeinsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Leikskólinn Stekkjarás leitar að sérkennara eða þroskaþjálfa í fullt starf.

Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum einstakling sem hefur reynslu af vinnu með börnum.  Leikskólinn Stekkjarás er átta deilda og er staðsettur í Áslandshverfinu. Leikskólinn starfar eftir aðferðum Reggio Emilia og einkunnarorð leikskólans eru „Hugmyndir barnsins – verkefni dagsins“. Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggur sérkennslu fyrir barn/börn í samvinnu við deildarstjóra og sérkennslustjóra og leiðbeinir starfsfólki leikskólans þannig að það taki þátt í kennslu barna sem þurfa sérkennslu
  • Gerir skriflegar einstaklingsnámskrár fyrir barn/börn sem fá sérkennslu í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra
  • Sér um að einstaklingsnámskrám sé framfylgt og þær endurmetnar í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra
  • Veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda sérstaka aðstoð og kennslu.
  • Gætir þess að barn sem nýtur sérkennslu einangrist ekki heldur sé hluti af hópnum og eigi hlutdeild í leikskólastarfinu
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu á deildinni og situr fundi og viðtöl með þeim
  • Situr foreldrafundi sem haldnir eru á vegum leikskólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun (leyfisbréf fylgi umsókn) eða þroskaþjálfamenntun (starfsréttindi fylgi umsókn)
  • Framhaldsmenntun á sviði sérkennslufræða kostur
  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH) kostur
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar 
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Fríðindi í starfi

  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Forgangur á leikskóla
  • Samgöngustyrkur

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir, leikskólastjóri, harpako@hafnarfjordur.is, eða í síma 517-5920.

Umsóknarfrestur er til og með 10.mars 2026.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélagi Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Sumarstörf á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar

Umsóknarfrestur

12.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 24.02.2026

Umsóknarfrestur til: 12.03.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Við óskum eftir glöðum og jákvæðum starfsmönnum í sumarafleysingar í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar. 

Ráðningartíminn getur verið misjafn, að jafnaði frá miðjum maí fram í seinni hluta ágúst. Leikskólar Hafnarfjarðabæjar verða lokaðir frá 13. júlí til og með 3. ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna á leikskóla
  • Tekur þátt í leikskóla- og frístundastarfi innan leikskólans og öðrum þeim störfum sem fram fara innan skóladagsins.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af leikskólastarfi eða öðrum störfum með börnum kostur
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og sé 18 ára eða eldri. 

Nánari upplýsingar um störfin veita leikskólastjórar í hverjum leikskóla. 

Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2026.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. 

Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Kennsla í skólaíþróttum – Hvaleyrarskóli

Umsóknarfrestur

11.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 25.02.2026

Umsóknarfrestur til: 11.03.2026

Tengiliður: Kristinn Guðlaugsson

Deila starfi

Skoða nánar

Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða kennara í skólaíþróttir í 50-70% starf skólaárið 2026-2027

Í Hvaleyrarskóla eru um 370 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna sem endurspeglast í öllu skólastarfi. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipi og uppbyggilegt námsumhverfi. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu, skapandi starf og fjölbreyttar kennsluaðferðir.

Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, byrjendalæsis og orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistir/danskennslu.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í skólaíþróttum í samvinnu við skólastjórnendur og kennara
  • Vinna að þróun skólastarfs með áherslu á teymisvinnu og faglegt samstarf
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og SMT skólafærni með það að markmiði að tryggja öryggi og jákvætt andrúmsloft 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (skal fylgja umsókn)
  • Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum æskileg
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni og áhugi á skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Lipurð og jákvæðni í samskiptum
  • Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á Mentor

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is í síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.

Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2026. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Kennsla í stærðfræði og umsjón á elsta stigi – Hvaleyrarskóli

Umsóknarfrestur

11.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 25.02.2026

Umsóknarfrestur til: 11.03.2026

Tengiliður: Kristinn Guðlaugsson

Deila starfi

Skoða nánar

Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða kennara í stærðfræði og umsjón á elsta stigi

Í Hvaleyrarskóla eru um 370 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna sem endurspeglast í öllu skólastarfi. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipit og uppbyggilegt námsumhverfi. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu, skapandi starf og fjölbryettar kennsluaðferðir.

 

Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, byrjendalæsis og orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistir/danskennslu.

Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í stærðfræði á elsta stigi í samvinnu við skólastjórnendur og kennara
  • Vinna að þróun skólastarfs með áherslu á teymisvinnu og faglegt samstarf
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og SMT skólafærni með það að merkmiði að tryggja öryggi og jákvætt andrúmsloft

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (skal fylgja umsókn)
  • Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum æskileg
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni og áhugi á skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Lipurð og jákvæðni í samskiptum
  • Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á Mentor

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is í síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.

Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2026. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Kennsla í textíl – Hvaleyrarskóli

Umsóknarfrestur

11.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 25.02.2026

Umsóknarfrestur til: 11.03.2026

Tengiliður: Kristinn Guðlaugsson

Deila starfi

Skoða nánar

Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða textílkennara í 70-100% starf

Í Hvaleyrarskóla eru um 370 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna sem endurspeglast í öllu skólastarfi. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipit og uppbyggilegt námsumhverfi. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu, skapandi starf og fjölbryettar kennsluaðferðir.

 

Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, byrjendalæsis og orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistir/danskennslu.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í textíl og hugsanlega öðrum greinum í samvinnu við skólastjórnendur og kennara
  • Vinna að þróun skólastarfs með áherslu á teymisvinnu og faglegt samstarf
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og SMT skólafærni með það að markmiði að tryggja öryggi og jákvætt andrúmsloft

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (skal fyljga umsókn)
  • Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum æskileg
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni og áhugi á skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Lipurð og jákvæðni í samskiptum
  • Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á Mentor

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is í síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.

Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2026. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Blikaás

Umsóknarfrestur

13.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 27.02.2026

Umsóknarfrestur til: 13.03.2026

Tengiliður: Ragna Dögg Magnúsdóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Blikaás

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn til sumarafleysinga á á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Blikaási í Hafnarfirði. 

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.

Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Bílpróf er skilyrði
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragna Dögg Magnúsdóttir forstöðumaður í síma 585-5762 eða á netfanginu ragnadogg@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2025

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Þroskaþjálfi – Skammtímadvöl Hnotubergi

Umsóknarfrestur

22.03.2026
Skrá inn og sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 06.03.2026

Umsóknarfrestur til: 22.03.2026

Tengiliður: Hrönn Harðardóttir

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða þroskaþjálfa til starfa á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenni, staðsett í Setbergshverfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí n.k. eða eftir samkomulagi

Starfshlutfall er 80% – 90% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld- og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Framfylgir hlutverki og markmiðum starfstöðvar
  • Ber ábyrgð á skipulagningu, samhæfingu, áætlanagerð, skýrslugerð, upplýsingamiðlun, ráðgjöf, fræðslu og samskiptum við aðrar stofnanir
  • Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotend, leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði fatlaðs fólks og stuðla að valdeflingu þeirra
  • Setja upp og fylgja eftir þjónustuáætlunum sem og starfsáætlun
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi.
  • Reynsla af skipulagi faglegs starfs á svið þroskaþjálfunar æskileg
  • Samstarf- og skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði, samviskusemi, hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað   
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Harðardóttir forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-2545, netfang: hronnha@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026

Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.