Eldra fólk
Markmiðið er að eldra fólk í Hafnarfirði geti búið sjálfstætt sem lengst. Í boði er félagsstarf, hreyfing og fjölbreyttur stuðningur. Þjónandi leiðsögn er höfð að leiðarljósi.
Öldungaráð
Öldungaráð gætir hagsmuna eldra fólks í Hafnarfirði og veitir bæjarstjórn ráðgjöf.
Öldungaráð veitir bæjaryfirvöldum og stofnunum bæjarins ráðgjöf varðandi mál eldra fólks í bænum. Ráðið hefur samráð við samtök eldri borgara í Hafnarfirði og annað fólk sem vinnur að málefnum þeirra.
Verkefni Öldungaráðs eru:
- Að fylgjast með velferð eldra fólks í Hafnarfirði.
- Að gera tillögur til bæjarins um öldrunarþjónustu.
- Veita umsagnir varðandi stefnumótandi ákvarðanir og reglur er lúta að málefnum eldri borgara.
- Leitast við að eldri borgarar fái þá þjónustu sem þeir þarfnast og kynna þeim þá kosti sem eru í boði.
Bæjarstjórn tilnefnir þrjá fulltrúa og tvo til vara. Einn þeirra er ritari ráðsins. Félag eldri borgara í Hafnarfirði tilnefnir þrjá fulltrúa og tvo til vara. Heilsugæslan í Hafnarfirði tilnefnir einn og einn til vara.
Öldungaráð
Aðalmenn
| Nafn | hlutverk | Stjórnmálaflokkur |
|---|---|---|
| Valgerður Sigurðardóttir Tilnefnd af Félagi eldri borgara |
Formaður | |
| Þórarinn Þórhallsson | Varaformaður | |
| Guðlaug Steinsdóttir Tilnefnd af heilsugæslu höfuðborgarsvæðisinns |
Tilnefnd af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisinns | |
| Gylfi Ingvarsson Tilnefndur af Félagi eldri borgara |
Tilnefndur af Félagi eldri borgara | |
| Helga Ragnheiður Stefánsdóttir | Sjálfstæðisflokkur | |
| Valgerður M. Guðmundsóttir | Samfylkingin | |
| Þórdís Bakkmann Kristinsdóttir Tilnefnd af Félagi eldri borgara |
Tilnefnd af Félagi eldri borgara | |
| Herdís Hjörleifsdóttir | Ritari |