Heilsa
Reglulegt hreyfing getur skipt sköpum þegar kemur að andlegri og líkamlegri heilsu. Í Hafnarfirði má finna öflugt félagsstarf og hreyfingu fyrir eldri borgara.
Heilsuefling
Frístundastyrkur
Eldri borgarar geta fengið frístundastyrk í formi tekjutengdrar niðurgreiðslu fyrir íþrótta- og tómstundastarf, allt að 4000 kr. á mánuði. Sótt er um styrkinn á Mínum síðum. Einnig er frítt fyrir eldri borgara í allar sundlaugar bæjarins.
Tekjuviðmið vegna frístundastyrks árið 2024.
Einstaklingar: 442.912kr á mánuði
Hjón: 575.786 kr á mánuði
Ýmislegt er í boði
Hjallabraut 33
Á Hjallabraut 33 má finna ýmsa þjónustu fyrir eldri borgara:
- Leikfimi. Þriðjudaga og föstudaga kl. 10:45. Upplýsingar í síma 585 1912.
- Hárgreiðslustofa. Pantanir í síma 565 3680.
- Snyrti- og fótaaðgerðafræðingur. Pantanir í síma 866 6015.
- Mötuneyti.
Sólvangsvegur 1
- Verslunarferðir. Farið frá Sólvangsvegi 1 í Bónus, alla þriðjudaga kl. 14.
- Mötuneyti.
Dagdvöl
Hægt er að sækja um dagdvöl á Hrafnistu, Sólvangi eða í Drafnarhúsi (fólk með heilabilun). Þar er boðið upp á félagsstarf og hvíld.
Stuðningur við syrgjendur
Sorgarmiðstöð styður við syrgjendur og alla þá sem vinna að velferð þeirra. Þar er hægt að sækja mismunandi fræðsluerindi, koma í stuðningshóp, djúpslökun, opið hús, taka þátt í göngum eða mæta á námskeið. Sorgarmiðstöð er öllum opin.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu þeirra, senda tölvupóst á sorgarmidstod@sorgarmidstod.is eða hringja í síma 551 4141 alla virka daga frá 10–14.