Eldra fólk
Markmiðið er að eldra fólk í Hafnarfirði geti búið sjálfstætt sem lengst. Í boði er félagsstarf, hreyfing og fjölbreyttur stuðningur. Þjónandi leiðsögn er höfð að leiðarljósi.
Matarþjónusta
Holl næring skiptir miklu máli til að halda heilsu og færni. Eldra fólk á kost á að fá mat í mötuneytum eða sendan heim.
Mötuneyti fyrir eldri borgara
Í bænum eru tvö mötuneyti þar sem eldri borgarar geta mætt alla virka daga frá 11:30–12:30.
- Hjallabraut 33. Upplýsingar í síma 664 5732
- Sólvangsvegur 1. Upplýsingar í síma 565 2392
Gjaldskrá
| Mötuneytismatur | kr. |
|---|---|
| Mötuneytismatur, stök máltíð | 1.006 kr. |
Heimsendur matur
Þau sem geta ekki séð sjálf um matseld í skemmri eða lengri tíma og hafa ekki tök á að fara í mötuneyti geta fengið heimsendan mat. Sækja þarf um að fá heimsendan mat á Mínum síðum og vottorð frá fagaðila þarf að fylgja með.
Gjaldskrá
| Heimsendur matur | Verð |
|---|---|
| Hver máltíð | 1.045 kr. |
| Heimsendingargjald | 384 kr. |