Tjarnarás fyrsti Réttindaleikskóli UNICEF í Hafnarfirði

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Leikskólinn Tjarnarás tók í dag á móti viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF. Hlustað er á börnin og þau skipa réttindaráð og læra um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hafnarfjörður er barnvænt samfélag.

Börnin segja sína skoðun á starfinu

UNICEF veitti leikskólanum Tjarnarási viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF í dag 1. júní á afmælisdegi Hafnarfjarðarbæjar. Skólinn er sá fyrsti í Hafnarfirði sem fær viðurkenninguna.

„Jú, svo sannarlega erum við stolt,“ segir Eygló Sif Halldórsdóttir leikskólastjóri Tjarnaráss. „Viðurkenningin skapar sameiginlega sýn og er stórt skref fyrir bæði okkur starfsfólkið og börnin sem fá að tjá sig og hafa áhrif á umhverfi sitt.“

Í Réttindaskóla og -frístund UNICEF er unnið markvisst að einum af grunnþáttum íslenskrar menntunar, lýðræði og mannréttindum. Áhersla er lögð á barnaréttindafræðslu fyrir jafnt börn og fullorðna og að börn séu virkir þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi. Með innleiðingu Réttindaskóla felast mörg tækifæri til að vefa mannréttindi og lýðræði inn í starfið og styðja þannig við markmið um menntun og farsæld barna.

Börnin þegar breytt starfinu

Eygló segir nýju umgjörðina þegar hafa sannað þig. Starfinu hafi verið breytt til að mæta því sem börnin vilja sjá. Elsti hópurinn skipti réttindaráð sem hittist einu sinni í viku.

„Við tökum eina og eina grein úr barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir og förum yfir hana. Það hefur gefið okkur betri innsýn í þeirra sjónarmið. Þau hafa verið að koma með góðar ábendingar. Það er virkilega gaman að heyra þau kryfja greinar sáttmálans,“ segir leikskólastjórinn.

Tjarnarás er búinn að  byggja upp lýðræðislegt umhverfi með að taka þátt í þessu verkefni og með því að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi.

Börnin í réttindaráði Tjarnarás skipulögðu daginn. Þau hvöttu nemendur að mæta í búningum, sungu saman lög til að fagna þessum merka áfanga og nutu vöffluboðs í nónhressingu dagsins.

Innleiðing í átta skrefum

Innleiðing Barnasáttmálans er í átta skrefum. Skrefin leiða þátttakendur í gegnum hvern hluta innleiðingarinnar með skýrum leiðbeiningum, gátlistum stöðumati, aðgerðaáætlun og lokaskýrslu. Þegar fyrsta hring er lokið hefst sá næsti og haldið er áfram með réttindastarfið.

Tjarnarás hóf sína vegferð fyrir ári síðan. Vanalega tekur þessi hringur tvö ár en þar sem starfsfólk hafði þegar byggt upp góðan grunn lönduðu þau viðurkenningunni eftir aðeins eins árs ferli.

Þórunn Þórarinsdóttir, verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags hjá Hafnarfjarðarbæ, óskar skólanum til hamingju. „Innilega til hamingju með þessa viðurkenningu Tjarnarás, þið hafið skapað umhverfi þar sem raddir barna heyrast og virðing er í fyrirúmi. Þessi merki áfangi sýnir dugnað ykkar, metnað og alúð sem þið leggið í starfið ykkar á hverjum degi,“ segir hún. „Takk fyrir að vera frumkvöðlar í bæjarfélaginu þegar kemur að velferð og réttindum barna. “

Já, innilega til hamingju Hafnarfjörður.

Ábendingagátt