Hamingjudagar í Hafnarfirði
Sjóbað, zumba, svefn og samvera — Allt sem kveikir á hamingjunni bíður þín á Hamingjudögum í Hafnarfirði. Gæðastundir með góðu fólki í heilsubænum Hafnarfirði.
Hugmyndin að Hamingjudögum kviknaði árið 2023 til að bregðast við ákveðnum vísbendingum um að hamingjustuðull landsmanna fari dvínandi og eru því nú haldnir í þriðja sinn.
Nú breytum við því og setjum mark okkar á hamingjuna!
Heilsusamlegur lífsstíll og jákvætt viðhorf stuðlar að betri andlegri og líkamlegri líðan og eykur hamingju okkar. Sækjum í hamingjuna saman.
Heilsubærinn Hafnarfjörður stendur fyrir ýmsum viðburðum sem tengjast heilsu og hamingju allan septembermánuð! Komdu að njóta!
Hamingjuviðburðir á Hamingjudögum í Hafnarfirði
- HamingjuGong við Hvaleyrarvatn – Mið. 3. sept kl. 18:00
- HamingjuSána með Herjólfsgufunni – Fim. 4. sept kl. 17:00 – 19:00
- HamingjuPrjónakaffi á Ægir 220 – Sun. 7. sept. kl. 13:00 – 16:00
- HamingjuSveppaganga með Helenu Mörtu – Mán. 8. sept. kl. 18:00
- HamingjuHlaup – 10 kílómetrarnir hans Krissa – Þri. 9. sept. kl. 17:30
- HamingjuSána fyrir eldri borgara með Herjólfsgufunni – Fim. 11. sept kl. 11:00 – 13:00
- HamingjuZumba með Síkátu Zúmbínunum – Fim. 11. sept. kl. 17:30
- HamingjuríktHjónaband með Soffíu Bæringsdóttur – Mán. 15. sept kl. 20:00
- HamingjuSjóbað með Glaðari þú – Fös. 19. sept. kl. 17:30
- HamingjuMiniMelodica í Hellisgerði – Lau. 27. sept. kl. 17:00
- HamingjuBallett í Suðurbæjarlaug – Mán. 29. sept. kl. 18:00
- HamingjuSvefn & slökun með Betri svefn og SheSleep – Þri. 30. sept. kl. 17:30