Miðvikudaginn 22. mars kl. 14 bjóðum við gesti velkomna á næsta viðburð Sjónarhorna, fræðslustunda fyrir eldra fólk, í Hafnarborg. Þá mun sérfræðingur safnsins fjalla um verk úr safneign Hafnarborgar sem telur nú hátt í 1600 verk eftir marga af frumkvöðlum íslenskrar myndlistar sem og fremstu listamenn samtímans, auk verka sem tengjast sýningarsögu safnsins eða varpa ljósi á sögu Hafnarfjarðarbæjar.

Sjónarhorn er dagskrá sem hófst í Hafnarborg vorið 2022 en safnið leggur áherslu á að gefa öllum tækifæri til að kynnast menningu og listum og býður upp á leiðsagnir fyrir alla aldurshópa. Er markmiðið að gefa innsýn í starfsemi Hafnarborgar, yfirstandandi sýningar eða einstök verk úr safneign með mánaðarlegum viðburðum yfir vetrartímann. Boðið er upp á kaffi og meðlæti að lokinni dagskrá.

Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.


Dagskráin framundan

22. mars kl. 14
Verk úr safneign Hafnarborgar

19. apríl kl. 14
Leiðsögn um sýninguna Ósýndarheima

17. maí kl. 14
Ritaðar myndir og texti í myndlist

Ábendingagátt