Vetrarfrí október 2026
Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar mánudaginn 26. október og þriðjudaginn 27. október. Af því tilefni býður Heilsubærinn Hafnarfjörður…
Sunnudaginn 1. nóvember kl. 16 verður fluttur gjörningur í tengslum við verk Gabi Schillig, mjúkar eftirmyndir / bergmál rýmis, í tilefni af lokadegi haustsýningar Hafnarborgar, spássíunnar. Í gjörningnum er samband líkama, efnis og rýmis kannað, þar sem flytjendurnir nálgast verk Gabi á eigin forsendum og finna eigin tengingu við efniviðinn. Samspil þeirra við verkið opnar jafnframt á tengsl við önnur verk og sýningarrýmið sjálft.
Í verkum sínum veltir Gabi því fyrir sér hvernig líkaminn og rýmið móta hvort annað og vinnur meðal annars með hugmyndina um mjúkan arkitektúr, þar sem mýkt verður leið til að endurmeta hugmyndir um samvist og umhyggju. Flytjendur eru Íris Ásmundar og Sara Lind Guðnadóttir. Gjörningurinn var fluttur við opnun sýningarinnar en verður nú endurtekinn í tilefni af lokadegi hennar.
Á sýningunni eiga sex listamenn í beinu samtali við sýningarrýmið. Þau vinna með ólíka miðla en eiga það öll sameiginlegt að takast á við rýmið, hvort sem er í gegnum efni, hugmynd eða uppsetningu. Þannig verður spássían sjálf að viðfangsefni sýningarinnar, bæði sem raunverulegt rými og hugmynd. Listamennirnir eru Daníel Ágúst Ágústsson, Gabi Schillig, Hildur Elísa Jónsdóttir, Iyo Hasegawa, Joe Keys og Shiori Ono. Sýningarstjórar eru Katrín Björg Gunnarsdóttir og Úlfur Bragi Einarsson.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.