Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Svava Dögg(SVAVS) heldur sýningu í Litla Gallerý 1. júní n.k. Verkin á þessari sýningu er afrakstur síðustu tíu mánaða þar sem Svava leitast við að rannsaka fólk og það sem það segir án þess að það sé beinlínis segja það.
Sérstök sýningaropnun verður 12:00-18:00 sama dag og allir velkomnir.
“Árið 2013 sótti ég fyrst um hjá Listaháskólanum en komst ekki inn. Alla ævi hefur mér verið sagt af allskonar fólki að ég sé svo hæfileikarík listakona, að ég sé snillingur. Það kom mér því á óvart að hafa ekki komist inn á þessum ótrúlegu hæfileikum. Fjórum sinnum í viðbót sótti ég um en fékk alltaf sama svarið, síðast árið 2019. Ég prófaði margskonar annað nám sem ég hafði vissulega áhuga á en af ýmsum ástæðum entist ég hvergi. Ár liðu, hrukkur mynduðust og geðheilsan borgaði sinn skatt sem virtist hækka eftir því sem á leið. Ég var næstum sannfærð um að ég væri gallað eintak sem passaði einfaldlega ekki í samfélagið. Og það var engum um það að kenna, þetta var samspil margra þátta þar sem útkoman var: ég!
Svo fór ég í fornámið í Myndlistarskólanum í Reykjavík og svei mér þá ef ég er ekki bara orðin heil á ný! Þar komst ég að því að það er raunverulega til fólk eins og ég. Yfirleitt alltaf þegar ég hitti fólk á förnum vegi, eftir að ég byrjaði í náminu, segir það við mig að það sé svo ánægt að ég sé loksins búin að finna mína hillu.
Eftir á að hyggja er ég svo óendanlega þakklát fyrir að hafa ekki komist í Listaháskólann í öll hin skiptin sem ég sótti um því þá hefði ég farið ein inn. Núna er ég að fara með svo sterkt félagslegt bakland. Já, ég komst sem sagt inn núna, vei : ) – Það er allt eins og það á að vera.
Fyrir tveimur árum fékk ég greiningu um að ég væri ekki bara með lesblindu á orð heldur fólk líka. Þó að það hafi kannski ekki endilega komið á óvart þá fannst mér áhugavert að hægt væri að fá greiningu upp á það og fór að rannsaka þann vinkil hjá sjálfri mér enn frekar. Það er að segja, meira en venjulega.
Verkin á þessari sýningu er afrakstur síðustu tíu mánaða þar sem ég leitast við að rannsaka fólk og það sem það segir án þess að það sé beinlínis segja það.”
Svava Dögg tekur vel á móti gestum og allir hjartanlega velkomnir!
Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.