Gefur foreldrum ráð til að einfalda börnunum skólalífið
Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir hefur kafað í öll öpp sem einfalda börnum skólalífið. Hún ætlar að opna huga foreldra gagnvart öllum tæknilausnunum í boði á fyrirlestri í Bæjarbíói 18. mars kl. 19:30.
Tæknin getur einfaldað námið til muna
„Málfríður, Memrise, Rasmus, Notion, Brainrot. Þekkiði þessar lausnir og öpp?“ spurði Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir, menntatæknisérfræðingur og stofnandi fyrirtækisins HARTS, 8. bekkinga Víðistaðaskóla í gærmorgun. Það var á fyrsta af fjórum fyrirlestrum sem hún hélt þann dag. Hún fór svo yfir mörg öppin og ávinninginn af þeim í námi barnanna.
Jóhanna hefur einnig fundað með kennurum Hafnarfjarðar og verður miðvikudaginn 18. mars kl. 19.30 með fyrirlestur fyrir foreldra um öll tækifærin sem börnin þeirra – og þau sjálf – geta gripið til að einfalda námið og fá sem mest út úr því.
- Hvar? Bæjarbíói
- Hvenær? Miðvikudaginn 18. mars kl. 19:30.
Jóhanna hefur nú heimsótt flesta grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar allt frá miðjum febrúarmánuði. Hún hefur haldið innblásinn fyrirlestur fyrir krakkana um tæknilausnir sem þau geta nýtt til að einfalda sér námið.
Hún hefur mælt með frábærum öppum og góðum vefsíðum sem geyma lausnir sem mörg þeirra vita ekki af. Til að mynda að þau geta lesið inn texta á google docs í stað þess að pikka, svo dæmi séu tekin. Einnig tekið mynd af reikningsdæmi, hlaðið inn á ervigreindarsíður og fengið útskýringu á því hvernig þau leysa dæmið.
Brillerar í bandarísku skólakerfi
Jóhanna Birna er hafnfirsk. Hún fótaði sig illa í íslenska skólakerfinu en afar vel í því bandaríska. Þar stundaði hún nám í Flórídaháskóla og útskrifaðist með toppeinkunn, var valin á Dean‘s lista, sem jafna má við forsetalista hér heima, og leiðir alþjóðleg rannsóknarverkefni. Um síðustu helgi var hún valin í frægðarhöll skólans. Þetta tókst henni þrátt fyrir ADHD, lesblindu, og einhverfu.
Jóhanna stofnaði menntatæknifyrirtækið HARTS árið 2023 þegar hún var 21 árs og heldur nú þessa fyrirlestra í skólum Hafnarfjarðar. „Já, krakkarnir voru áhugasöm. Þau sjá flest fyrir sér að nota einhver appanna sem ég nefni í fyrirlestrinum,“ sagði Jóhanna Birna eftir þennan fyrsta fyrirlestur dagsins.
Jóhanna lýsti óbeinum hindrunum sem börnin verða fyrir á einfaldan máta. Hún ræddi skólakerfið og hvernig hún hrökklaðist út úr því íslenska og inn í það bandaríska með frábærum árangri. Hún ræddi við þau um það hversu mikilvægt væri að horfa á skólann sem vandann en ekki nemandann þegar kæmi að námsörðugleikum. Mikilvægt væri að aðlaga kennsluna að getu hvers og eins.
„Ég fór úr kennslustundinni og skyldi ekki hvað var í gangi ólíkt hinum nemendunum sem virtust gera það,“ lýsti hún grunnskólagöngunni.
„Það hafa allir verið í þessari stöðu einhvern tímann en ef þú upplifir þetta oft er það ekki gott. Þá þurfum við að biðja um aðgengilega uppsetningu, fá að nota hjálpartæki,“ sagði hún krökkunum. Hún nefndi forritið Helperbird – sem Hafnarfjarðarbær er búinn að kaupa og hjálpar nemendum með dyslexíu.
Hvetur alla foreldra til að mæta í Bæjarbíó
Kristín Thoroddsen, formaður fræðsluráðs, segir fyrirlestra Jóhönnu Birnu hafa vakið mikla athygli. Hún hvetur foreldra til að mæta í Bæjarbíó og sjá allt sem er í boði.
„Tækninni fleygir fram og það er er svo magnað að sjá allan þann stuðning sem krakkarnir geta nýtt sér.
„Allir foreldrar hafa gagn af þeim lausnum sem Jóhanna fjallar um. Þetta eru lausnir sem nýtast þeim líka til að aðstoða við nám barna sinna. Við komumst hratt að því hvernig við getum hjálpað börnunum okkar í námi þeirra en við foreldrar þekkjum það vel að vera í vandræðum með að aðstoða börnin okkar í heimanámi þeirra,“ segir hún.
„Ég er ótrúlega stolt af því að hafa fengið Jóhönnu með okkur í lið og það er dásamlegt að heyra sögur barna sem hafa setið fyrirlesturinn þar sem þau tala um að hafa öðlast trú á sjálfum sér og von um framhaldsnám sem þau töldu sig ekki geta farið í. “