Hamranesskóli rís – „Við verðum öflug liðsheild“
„Mig langar að byrja núna,“ segir Guðbjörg Norðfjörð, skólastjóri Hamranesskóla, sem fór í vettvangsferð með fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar og Ístaks síðastliðinn föstudag. Farið var yfir stöðuna og skólinn, sem nú er í uppbyggingu, skoðaður.
„Mig langar að byrja núna,“ segir Guðbjörg Norðfjörð, skólastjóri Hamranesskóla, sem fór í vettvangsferð með fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar og Ístaks síðastliðinn föstudag. Farið var yfir stöðuna og skólinn, sem nú er í uppbyggingu, skoðaður. Guðbjörg segir bygginguna langt komna.

Guðbjörg Norðfjörð, skólastjóri Hamranesskóla.
„Á sumum stöðum er búið að mála veggina,“ segir hún. Nóg sé þó eftir. „Við fórum alla gangana og sjá mátt að eitthvað er komið á hverjum stað. Það er komin mynd á allt.“ Guðbjörg segir að hún hafi horft yfir svæðið, séð fyrir sér krakka á göngunum og hvernig þau muni koma til með að sitja í gluggakistunum.
„Þær eru víða djúpar. Þetta er æðislegt,“ segir hún og hvernig hún stefni á að hitta foreldra og segja þeim frá stöðunni þegar nær dregur vori.
Fyrsti áfanginn tilbúinn 2027Skólinn verður tekinn í notkun í tveimur áföngum. Fyrsti áfangi Hamranesskóla verður tilbúinn haustið 2027 og stefnt að því að klára skólann allan 2028. Byrjað verður á lóðinni vonbráðar.
Hamranesskóli verður heildstæður skóli fyrir börn á aldrinum 12 mánaða til 16 ára. Skólinn verður byggður samkvæmt metnaðarfullri hugmyndafræði og býður uppá spennandi tækifæri til nýbreytni í skólastarfi. Í skólanum verður frístundaheimili og félagsmiðstöð ásamt útbúi frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Samningurinn við Ístak var undirritaður á bæjarskrifstofum Hafnarfjarðar í fyrrasumar. Skólinn verður sá tólfti í Hafnarfjarðarbæ en tíundi rekinn af bænum. Hann verður 8800 fermetrar.
Spennt fyrir nýjum skóla
„Ég sé fyrir mér að byrja kennslu næsta haust – alla vega hjá fyrir 1. – 4. bekk. Ég get ekki séð annað en að við komumst inn í húsið. Oft er byrjað í gámum úti eða öðru húsnæði þegar nýir skólar eru byggðir. En miðað við stöðuna núna byrjum við starfsemina strax í húsinu.“
Guðbjörg segir Hamraneshverfið enn að byggjast upp. „Hér er fullt af börnum og ég ekki í nokkrum vafa um að þau verða ánægð með skólann sinn. Við verðum með lausnir, úrræði og verkefni fyrir öll hvar sem þau standa.“
Hún horfir í kringum sig á hjúkrunarheimilið að rísa gegnt skólanum, á náttúruna í kring. „Ég sé svo mörg tækifæri. Við höfum náttúruna til útikennslu. Já, Hamranesskóli lítur svakalega vel út,“ segir hún að lokum.
„Við verðum öflug liðsheild í Hamranesskóla.“