Hafnarfjarðarbær heldur gjaldskrárhækkunum innan 2,5%
Hafnarfjarðarbær mun ekki hækka almennar gjaldskrár umfram 2,5% á árinu 2027. Bærinn hverfur því frá breytingu á systkinaafslætti á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar.
Heldur í við almennar gjaldskrárhækkanir
Hafnarfjarðarbær mun ekki hækka almennar gjaldskrár umfram 2,5% á árinu 2027. Það ákvað bæjarráð á fundi sínum í gærmorgun að yrði grundvallarviðmið við fjárhagsáætlunargerð bæjarins sem nú stendur yfir. Bærinn svarar þar með ákalli Sambands íslenskra sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðar um sameiginlegt átak gegn verðbólgu.
Í ljósi þess ákvað bæjarráð rétt í þessu að hverfa frá breytingu á systkinaafslætti á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar, sem samþykkt var í bæjarráði 17. september og átti að koma til framkvæmda 1. nóvember. Sú ákvörðun hefði enda haft í för með sér að hækkun leikskólagjalda hefði farið fram úr þeim mörkun í ákveðnum tilfellum.
„Hafnarfjarðarbær vill með þessari ákvörðun leggja sitt af mörkum til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum sem hafa áhrif á útgjöld heimilanna. Markmiðið er að stuðla að auknum stöðugleika í efnahagslífinu og skapa sátt í samfélaginu,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs. „Við þurfum því að vera bæði úrræðagóð og hagsýn um leið og við veitum íbúum áfram góða þjónustu.“
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti hinn 25. september ályktun um að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á næsta ári. Markmiðið er að styðja við lækkun verðbólgu og vaxta og skapa skilyrði fyrir því að kjarasamningar haldi.
Jafnframt er kallað eftir því í ályktuninni að ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í átakinu með því að takmarka með sambærilegum hætti hækkanir gjaldskráa og álaga sem hafa bein áhrif á heimilin. Hafnarfjarðarbær ætlar að svara því kalli.