Komdu í Bæjarbíó: Hálpar foreldrum að nýta öpp til að einfalda heimanámið

Fréttir

Viltu einfalda þér lífið við heimanám barnanna þinna? Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir ætlar að opna huga foreldra gagnvart öllum tæknilausnunum í boði á fyrirlestri í Bæjarbíói 18. mars kl. 19:30. Já, lausnin er léttari en þú heldur.

 

 

Bæjarbíó miðvikudag kl. 19.30

Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir og Kristín Thoroddsen formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar mættu í Síðdegisútvarpið á Rás 2 í gær til að segja frá opna fyrirlestrinum í Bæjarbíói sem hjálpar foreldrum að skilja hvernig nýta má tæknina til að einfalda börnunum lærdóminn.

  • Hvar? Bæjarbíói
  • Hvenær? Miðvikudaginn 18. mars kl. 19:30.

„Ég er með allt stafrófið af greiningum,“ sagði Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir í gamansömum tóni í viðtalinu á Rás 2 í gær þegar hún sagði frá því hvernig henni hefði ekki gengið sem best í íslenska menntakerfinu en brillerað í Bandaríkjunum. Lesblind, með ADHD og einhverfu.

„Eins og þið getið ímyndað ykkur var grunnskólagangan ekki auðveld og ég fór ekki í menntaskóla.“ Hún hafi fundið krókaleið og farið í nám í Bandaríkjunum. Hún hafi tileinkað sér tæknina til að ná árangri í námi. Jóhanna hefur verið valin í frægðarhöll Flórídaháskóla, Hall of Fame, fyrir námsárangur sinn.

En hvernig gerði hún þetta? Tók SET-próf, TOEFL-prófið og GRE-próf. Fékk góðar einkunnir og náði að reikna út meðaleinkunn og sótti um í Flórídaháskóla. „Þetta bjargaði lífi mínu,“ segir Jóhanna.

En af hverju er námið betra þar en hér? spurði Rúnar Róbertsson þáttastjórnandi. „Þar er námsumhverfið hannað,“ svaraði Jóhanna Birna og að hún sé nú menntaður kennsluhönnuður, orð sem hafi ekki verið til hér á landi. Hún hanni framsetningu námsefnisins. Hún hafi getað einbeitt sér að því að læra en ekki þurft að hugsa svo mikið um rammann. Hún nýti hjálpartækin óspart.

Kristín sagði frá því að eftir fund með Jóhönnu hafi fræðsluráð Hafnarfjarðar séð tækifæri til að kynna fyrir börnum hvernig þau geti einfaldað sér námið. Kynna fyrir þeim leiðir, hjálpartæki, til að fanga betur námsefnið.

„Hrinda úr vegi þessum hindrunum sem börn fást við dagsdaglega.“ Þessi hjálpartæki gagnist einnig foreldrum til að skilja hratt hvernig þau geta leiðbeint börnunum við heimanámið.

„Við erum ótrúlega stolt að hafa fengið Jóhönnu til okkar,“ segir Kristín en Jóhanna hefur nú heimsótt flesta grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar allt frá miðjum febrúarmánuði. Hún hefur haldið innblásinn fyrirlestur fyrir krakkana um tæknilausnir sem þau geta nýtt til að einfalda sér námið.

Tæknin getur einfaldað okkur lífið. Og eins og Hrafnhildur Halldórsdóttir þáttastjórnandi sagði: Já, það er nú margt gott í Hafnarfirði

 

Ábendingagátt