Sunnudaginn 12. apríl kl. 13-15 bjóða Hafnarborg og GETA upp á fjöltyngda listasmiðju þar sem búnir verða til draumafangarar, undir leiðsögn listamannanna Mariönu Samarska og Anne Rombach. Tungumál smiðjunnar eru íslenska, úkraínska, enska og þýska.

Komið og takið þátt í skapandi og róandi listasmiðju þar sem við búum til einstaka draumafangara úr náttúrulegum og fjölbreyttum efnivið. Allt efni verður á staðnum en þátttakendur eru hvattir til að taka með sér hluti úr eigin safni – svo sem fjaðrir, efni eða fundna hluti – sem hægt er að flétta inn í verkið og gera það enn persónulegra.

Hver draumafangari ber með sér eitthvað villt – ekki aðeins til skrauts heldur til verndar, leiðsagnar og innblásturs. Látum anda og slæma drauma líða hjá…

Smiðjan fer fram á jarðhæð safnsins og er opin öllum aldurshópum. Engrar fyrri kunnáttu í listsköpun er krafist en börn skulu vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni. Eins og alltaf er þátttaka í smiðjum sem og aðgangur að sýningum safnsins gestum að kostnaðarlausu.

Á mínu máli er viðburðaröð sem miðar að því að auka aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg með því að bjóða gesti velkomna á ólíkum tungumálum. Viðburðurinn er samstarf Hafnarborgar og samtakanna GETU sem með fjölbreyttum viðburðum og félagsstarfi leitast við að stuðla að inngildingu og jákvæðri fjölmenningu. Verkefnið er styrkt af safnasjóði.

Ábendingagátt