Bjarni bæjarlistarmaðurinn í ár
Bjarni Viðar Sigurðsson leirlistamaður er bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar 2026. Bjarni sinnir list sinni hér í Hafnarfirði, er með leirlistaverkstæði við heimili sitt í Hrauntungu og vinnur þar muni sem hann selur víða um heim. Vegglistaverk, vasar, bollar, skálar, diskar og fleira – allt úr leir.
Valdimar Víðisson bæjarstjóri segir mikinn heiður að geta útnefnt Bjarna sem bæjarlistamann 2026. „Listsköpun hans er einstök, persónuleg og vönduð og hefur vakið verðskuldaða athygli bæði hér heima og erlendis. Bjarni er gott dæmi um þann kraft, hugrekki og sköpunargleði sem einkennir listalíf Hafnarfjarðar.“
Straumhvörf urðu í lífi Bjarna á tíunda áratugnum þegar hann hvarf úr bankageiranum í keramikið. „Ég er mjög stoltur af því að vera bæjarlistamaður Hafnarfjarðar. Það er heiður. Mér finnst yndislegt að vera séður í samfélaginu,“ segir Bjarni sem gleymir sér í að finna rétta glerunginn á verkin sín. Það gerði hann einnig þegar hann fékk fyrsta leirklumpinn í hendurnar á kvöldnámskeiði í Myndlistaskóla Reykjavíkur meðfram starfi sínu í Búnaðarbankanum.
„Ég hugsaði þarna: Ég ætla að verða keramiker,“ segir Bjarni sem fór í kjölfarið til Danmerkur í enn frekara nám í Aarhus Kunstakademi. Þar bjuggu þeir Guðbrandur Árni Ísberg maður hans í rúman áratug þar til þeir fluttu heim og komu vinnu sinni og heimili fyrir í Hrauntungu í Hafnarfirði. Bjarni með vinnustofu sína og Guðbrandur sálfræðistofu.
„Þetta er brjáluð, brjáluð vinna og hún hefur skilað sér og gefur mér mikið,“ segir hann um list sína en finna má muni Bjarna í þekktum hönnunarverslunum, meðal annars í Bandaríkjunum og Danmörku. Einnig veitingastöðum hér heima og erlendis. Má þar nefna Michelin-veitingastaði Jean George í New York sem og í sjóbaðinu í Hvammsvík. Bjarni selur þúsundir muna í ABC Carpet and Home í New York. Muni hans má einnig finna í Flora and Henry í Seattle, sem og Illum og Designer Zoo í Danmörku og Epal – Allir handgerðir.
Bjarni er fæddur Reykvíkingur en hefur búið hér í Hafnarfirði frá árinu 2007. „Hellisgerði er uppáhaldsstaðurinn minn hér í Hafnarfirði,“ svarar hann spurður. „Við löbbum mikið í Hafnarfirði, niður á höfn og tengjumst sjónum og bænum. Svo finnst mér frábært að sjá bæinn lifna við og sjá vini okkar streyma hingað víðsvegar að til að fara út að borða, njóta lífsins og kíkja þá við hjá okkur,“ segir hann.
„Við höfðum skoðað ýmsa staði en ég segi: Takk Guð fyrir að hafa komið okkur hingað, því þetta er besta bæjarstæðið á höfuðborgarsvæðinu. Við erum ekki að fara héðan í framtíðinni.“
En hvernig sér hann fyrir sér næstu fimm árin. „Vinna, vinna, vinna,“ segir hann og brosir. „En númer eitt, tvö og þrjú er að styrkja enn jólamarkaðinn minn,“ segir Bjarni sem hefur í tvo áratugi haldið vinsælan jólamarkað á vinnustofu sinni í aðdraganda hátíðarinnar.
„Svo sé ég fyrir mér í framtíðinni þegar ég verð orðinn gamall karl að vinna hér að jólamarkaðnum allt árið.“
Bjarni – Við vonum öll að nafnbótin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2026 verði þér hvatning til áframhaldandi árangurs við listsköpun þína. Innilega til hamingju!
Þau sem hlotið hafa nafnbótina bæjarlistamaður Hafnarfjarðar eru:
- 2025 – Arngunnur Ýr Gylfadóttir, myndlistarkona
- 2024 – Ebba Katrín Finnsdóttir, leikkona
- 2023 – Pétur Gautur, myndlistamaður
- 2022 – Björn Thoroddsen, gítarleikari
- 2021 – Friðrik Dór Jónsson, tónlistarmaður
- 2020 – Bergrún Íris Sævarsdóttir, barnabókahöfundur og teiknari
- 2019 – Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri
- 2018 – Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður
- 2017 – Steingrímur Eyfjörð, myndlistarmaður
- Ekki voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2015 til 2016
- 2014 – Andrés Þór Gunnlaugsson, tónlistarmaður
- Ekki voru útnefndir bæjarlistamenn á árunum 2010 til 2013
- 2009 – Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona
- 2008 – Sigurður Sigurjónsson, leikari
- 2007 – Jónína Guðnadóttir, myndlistarmaður
- 2006 – Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona
- 2005 – Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), myndlistarmaður
Við val á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar kallar menningar- og ferðamálanefnd eftir tilnefningum bæjarbúa. Árlega berst mikill fjöldi þeirra enda hefur Hafnarförður stimplað sig inn sem vagga menningar og lista.
Hafnarfjarðarbær er þekktur fyrir iðandi menningarlíf sem er drifið áfram af kraftmiklu listafólki þar sem einstaklingurinn sjálfur, framlag hans, sköpun og þátttaka spilar stærsta hlutverkið. Bæjarlistamaður fær hálfa milljón í viðurkenningarskyni til að vinna áfram að list sinni.