Fjórtán mánaða börn innrituð í leikskóla Hafnarfjarðarbæjar
Tekist hefur að lækka innritunaraldur barna í leikskóla Hafnarfjarðar. Nú eru yngstu börnin ekki fimmtán mánaða þegar tekin inn heldur fjórtán.
Í hafnfirskum leikskóla er gaman
Tekist hefur að lækka innritunaraldur barna í leikskóla Hafnarfjarðar. Nú eru yngstu börnin ekki fimmtán mánaða þegar tekin inn heldur fjórtán. Þetta hefur tekist þótt börnum í leikskólum Hafnarfjarðar hafi fjölgað úr ríflega 1.650 í tæplega 1.860 á síðustu fjórum árum.
Öll börn fædd í júní 2025 og fyrr hafa fengið boð um leikskólapláss frá og með ágúst næstkomandi eða þegar aðlögun hefst í leikskólum. Það kemur fram í minnisblaði sem lagt var fyrir á fundi fræðsluráðs Hafnarfjarðar þann 15. apríl.
Skýrar áherslur í leikskólunum
Valdimar Víðisson bæjarstjóri segir það afar jákvætt og gott að Hafnarfjörður geti nú boðið börnum leikskólapláss frá 14 mánaða aldri. „Sá árangur næst ekki nema með öflugu starfsfólki, markvissum breytingum og skýrri áherslu á góða þjónustu við fjölskyldur bæjarins.“
Fræðsluráð fagnar því í bókun hversu vel hefur gengið að manna leikskóla Hafnarfjarðar sem tryggir að hægt er að bjóða börnum fædd í júní 2025 eða 14 mánaða leikskólapláss næsta haust. Þær breytingar sem gerðar hafa verið á leikskólastarfi í Hafnarfirði skila árangri og stuðla þar með að betri þjónustu við fjölskyldur bæjarins.
Árangur með breyttum leikskóladegi
Hafnarfjarðarbær innleiddi haustið 2024 breytingar á leikskóladegi barna sem gefur færi á styttri viðveru en um leið sömu umönnun og kennslu. Foreldrar gátu frá þeim tíma lækkað leikskólagjöldin um allt að 30%. Enn sem fyrr gátu foreldrar þó fengið pláss fyrir börnin sín fullan leikskóladag þyrftu þeir þess. Breytingarnar gáfu einnig meiri sveigjanleika fyrir starfsfólk.
Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusvið, segir breytingarnar hafa auðveldað útfærslu á betri vinnutíma fyrir starfsfólk og gert bæinn samkeppnishæfari á krefjandi vinnumarkaði.
„Starfsfólk leikskólanna er grunnurinn að öllu góðu leikskólastarfi og við þurfum að búa því viðunandi starfsskilyrði. Við sjáum að sveigjanlegra skipulag hefur styrkt bæði líðan starfsfólks og getu okkar til að halda í og laða að hæft fólk. Ánægðara starfsfólk skilar sér beint í betri upplifun barnanna,“ segir hún og breytingarnar séu því ávinningur bæði fyrir innra starf og þjónustuna við foreldra.
Mikilvægt að hafa val
„Leikskólarnir hafa tekið á móti mun fleiri börnum án þess að gæði starfsins hafi skerst. Starfsfólkið er mikilvægasta auðlind leikskólanna og þegar við sköpum því betri aðstæður skilar það sér beint til barnanna og fjölskyldnanna,“ segir hún. „Ekki síður mikilvægt er að foreldrar geta nú betur stillt dvöl barnanna af við þarfir fjölskyldunnar. “
Hún segir rannsóknir sýna að íslensk börn dvelji mun lengur í leikskólum en börn í öðrum Evrópulöndum og sérfræðingar hafi bent á mikilvægi þess að börn fái nægan tíma með foreldrum sínum, þar sem tengslamyndun við foreldra er undirstaða öryggis og þroska.
„Okkur er mikilvægt að foreldrar hafi raunverulegt val um lengd dvalar barna sinna. Við erum á góðri leið og höldum áfram að þróa starfið í takt við þarfir allra.“