Glæný molta án endurgjalds
Við Hafnfirðingar getum sótt moltu á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.
Molta án endurgjalds fyrir þig!
Við íbúar Hafnarfjarðar höfum staðið okkur stórvel í að flokka matarleifarnar og getum því notið afrakstursins og fengið moltu úr GAJU, gas- og jarðgerðarstöð SORPU án endurgjalds.
Moltan fæst á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu. Molta er öflugur og hollur jarðvegsbætir sem nærir jarðveginn. Hún er ólík mold að því leiti að hún inniheldur ekki nein ólífræn efni, eins og sand eða möl.
Molta í kerru eða fötu – þú ræður! Ef þú þarft moltu í minna magni getur þú nálgast moltu á öllum endurvinnslustöðvum á fram til 5. september. Mundu bara að koma með skóflu og fötu. Molta er á öllum endurvinnslustöðvum.
Hringrásin byrjar í eldhúsinu
Eins og SORPA orðar það er GAJA molta ætluð til notkunar utanhúss. Hún hentar vel til notkunar á akra, lóðir, græn svæði í þéttbýli, beð og matjurtagarða. Moltan er sterk og bein snerting óblandaðrar moltu við rætur plantna sé ekki æskileg.
GAJA molta er framleidd í samræmi við starfsleyfi Matvælastofnunar og skráð sem lífrænn áburður. Já, hringrásin byrjar í eldhúsinu. Þið sem eigið leið víðar um höfuðborgarsvæðið getið einnig sótt moltu á fleiri staði. Hana má líka fá á endurvinnslustöðvum SORPU við Sævarhöfða og Ánanaust.
Takk fyrir að flokka matarleifar. Það er sannarlega þess virði!