Frístund.is til að finna bestu tómstundina hverju sinni
Vefurinn Frístund.is hjálpar þér að sjá allt frístundastarf í boði í Hafnarfirði. Þar sérðu líka önnur sveitarfélög.
Frístund.is auðveldar þér leitina
Hefur þú séð vefinn Frístund.is? Hann auðveldar okkur að finna upplýsingar um íþróttir, námskeið og annað skipulagt frístundastarf fyrir börn, ungmenni og fullorðna.
Sjá má allt framboð frístundastarfs á höfuðborgarsvæðinu á einum stað. Flokkað er eftir aldri og staðsetningu. Sér flipi er fyrir hvert sveitarfélag og því auðvelt að sjá allt sem snertir Hafnarfjörð.
Markmiðið með frístund.is er að einfalda aðgengi að frístundastarfi og bæta yfirsýn fyrir foreldra og forráðamenn og þá sem vilja sækja frístundastarf. Já, nú er allt á einum stað. Kostur vefjarins er líka að hægt er að fylgjast með þvert á sveitarfélög.
Frístund.is er samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Vefurinn var upphaflega þróaður af Reykjavíkurborg, sem heldur utan um rekstur hans, í samstarfi við Kópavogsbæ, Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ og Mosfellsbæ. Samstarfið tryggir samræmda lausn sem nýtist íbúum þvert á sveitarfélög.
Já, skoðaðu og sjáðu allt sem er í boði!
