Sameiginlegur vilji að efla iðnnám í Hafnarfirði
Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar áttu í gær fund með menntamálaráðherra vegna fyrirhugaðrar sameiningar Iðnskólans í Hafnarfirði við Tækniskólann.
Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar áttu í gær fund með menntamálaráðherra vegna fyrirhugaðrar sameiningar Iðnskólans í Hafnarfirði við Tækniskólann.
Í samtali við Rúv í gærkvöldi sagði Guðlaug Kristjánsdóttir forseti bæjarstjórnar “ að á fundinum hafi komið fram sameiginlegur vilji beggja að efla og varðveita iðnkennslu í Hafnarfirði. Ákveðið var að skipaverkefnahóp til að vinna áfram að málinu.“
Stjórn Tækniskólans hefur lýst því yfir að öllum fastráðnum starfsmönnum Iðnskólans verði boðin störf og að áfram verði rekinn skóli í húsakynnum Iðnskólans í Hafnarfirði.
Á vef menntamálaráðuneytisins má sjá frétt um sameininguna og skoða fýsileikakönnunina um sameiningu