Dagskrá 17. júní 2015
Fjölbreytt hátíðardagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna á þjóðhátíðardaginn. Að lokinni hátíðardagskrá á Hamrinum fer skrúðgangan að Thorsplani þar sem fram fer fjölbreytt skemmtidagskrá sem teygir sig um allan miðbæinn.
17. júní 2015 – Gleðilega þjóðhátíð í Hafnarfirði
8:00 Fánar dregnir að húni og fánahylling
Skátafélagið Hraunbúar flaggar 100 fánum víðsvegar um bæinn í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna 19. júní.
10:00 Frjálsíþróttamót í frjálsíþróttahúsi Kaplakrika
Frjálsíþróttadeild FH stendur fyrir frjálsíþróttamóti fyrir 6-10 ára – börn fædd 2005-2009
Keppt verður í eftirtöldum greinum frjálsíþrótta:
6-8 ára: 60 m hl., 200m hl., skutlukast og langstökk.
9-10: 60 m hl., 600 m hl., kúluvarp og langstökk.
Allir velkomnir á mót í frjálsíþróttahúsinu. Keppendur fá verðlaunapening að lokinni keppni.
11:00 Þjóðbúningasamkoma í Flensborg
Annríki – Þjóðbúningar og skart veitir aðstoð við að klæðast þjóðbúningum og hvetur Hafnfirðinga til að taka fram þjóðbúninga allra landa.
12:00-18:00 Brettafélagið býður bæjarbúum á hjólabretti
Brettafélag Hafnarfjarðar býður bæjarbúum frítt í skateparkið Flatahrauni 14 milli kl. 12 og 18. Hægt verður að fá lánaðar græjur án endurgjalds.
13:00 Hátíðardagskrá á Hamrinum
Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Karlakórinn Þrestir
Ávarp fjallkvenna, hundrað hafnfirskar konur í þjóðbúningum
Ljóð fjallkvenna: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Helgistund, sr. Þórhildur Ólafs, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju
13:30 Skrúðganga frá Hamrinum að Thorsplani
Gengið nýja leið niður Hringbraut í átt að Læknum, beygt inn Lækjargötu og Strandgötu að Thorsplani. Lúðrasveit Hafnarfjarðar og skátafélagið Hraunbúar leiða skrúðgönguna ásamt fulltrúum íþróttafélaga. Í skrúðgönguna fylkjast víkingar, konur í þjóðbúningum, Sirkus Íslands og fleiri.
Hátíðarhöld í miðbænum kl. 14:00-16:00
Konubörnin Eygló Hilmarsdóttir og Ebba Katrín Finnsdóttir kynna barna- og fjölskyldudagskrá á Thorsplani
14:00 Ávarp formanns þjóðhátíðarnefndar, Matthías Freyr Matthíasson
14:05 Gunni og Felix
14:30 Sirkúsdans meistarahóps Bjarkanna
14:45 Víkingabardagi – Rimmugýgur
15:00 Skrímslin
15:30 Lína Langsokkur
Við Hafnarborg kl. 14:00-16:00
14:00 Electric Elephant
14:45 Línudans eldri borgara
15:00 Skylmingadeild FH
15:15 Dansar frá Listdansskóla Hafnarfjarðar
Kvartmíluklúbburinn sýnir bíla og Mótorhjólaklúbburinn Gaflarar sýna mótorhjól fyrir framan Hafnarborg
Austurgötuhátíð
Íbúar Austurgötu bjóða Hafnfirðinga og nærsveitarmenn velkomna á Austurgötuna á 17. júní
Siglingaklúbburinn Þytur verður með báta og kajaka á Læknum
Teymt undir börnum á hestum frá Hestamannafélaginu Sörla á Grundartúni
Strandgatan, stræti og torg
Á Strandgötunni verða sölubásar, leiktæki, andlitsmálun og götulistamenn
Á Ráðhústorginu verða leiktæki, götulistamenn, borðtennisdeild BH
Margrét Björg Gylfadóttir jóðlar og Margrét Arnardóttir leikur á harmonikku
Kaffisala skáta verður í og við húsnæði Rauða krossins við Thorsplan
Listahópur Vinnuskólans og Skapandi sumarstörf verða á ferðinni
Á Kaupfélagsreitnum verður litli róló, körfuboltaþrautabraut og andlitsmálun
Sjúkrastofnanir
Ingibjörg Friðriksdóttir, söngkona og Margrét Arnardóttir, harmonikkuleikari, heimsækja sjúkrastofnanir og flytja eigin útsetningar af þjóðlögum og sjómannavölsum og rekja stemminguna í íslenskri tónlist.
Hljómsveitakeppnin Bæjarbandið í Bæjarbíó
Menningar og listafélag Hafnarfjarðar stendur fyrir hljómsveitakeppninni Bæjarbandinu í Bæjarbíó. Lifandi tónlist frá kl. 14:00 og frítt inn.
Hafnarborg
Opið kl. 12:00-17:00. Ókeypis aðgangur. Í Hafnarborg standa yfir sýningarnar Enginn staður og Þinn staður, okkar umhverfi við Flensborgarhöfn.
Við Hafnarborg kl. 14:00-16:00
14:00 Electric Elephant
14:45 Línudans eldri borgara
15:00 Skylmingadeild FH
15:15 Dansar frá Listdansskóla Hafnarfjarðar
Enginn staður
Ljósmyndasýning sem beinir sjónum sínum að samtíma ljósmyndum af íslenskri náttúru eftir ljósmyndara og listamenn sem allir eru búsettir á Íslandi.
Meðal sýnenda eru: Björn Árnason, Claudia Hausfeld, Daniel Reuter, Edda Fransiska Kjarval, Ingvar Högni Ragnarsson, Katrín Elvarsdóttir, Pétur Thomsen og Stuart Richardson.
Sýningarstjórar eru: Áslaug Íris Friðjónsdóttir og Unnur Mjöll Leifsdóttir.
Þinn staður, okkar umhverfi við Flensborgarhöfn
Sýningin er opin vinnustofa um nýtt skipulag við Flensborgarhöfn. Í Sverrissal Hafnarborgar geta gestir kynnt sér stóran uppdrátt af Flensborgarhöfn og jafnframt notað hann sem grunn fyrir eigin hugmyndir. Þar má einnig sjá eldri kort og uppdrætti, ljósmyndir, greinargerðir og ýmis önnur gögn sem tengjast skipulagi Hafnarfjarðar við höfnina. Vinnustofan tengist undirbúningsvinnu Hafnarfjarðarbæjar vegna nýs skipulags á svæðinu við smábátahöfnina sem er skilgreint sem blanda af hafnarsvæði og verslunar- og þjónustusvæði. Bæjarbúar og aðrir fá tækifæri til að kynna sér skýrslur og annað efni sem notast er við í skipulagsgerð og til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri.
Umsjón með verkefninu hefur Magnea Guðmundsdóttir arkitekt.
Kvartmíluklúbburinn sýnir bíla og Mótorhjólaklúbburinn Gaflarar sýna mótorhjól fyrir framan Hafnarborg
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Lifandi og fróðlegt safn fyrir alla fjölskylduna . Opið kl. 11-17 í fimm húsum, Pakkhúsið, Sívertsens-hús, Beggubúð, Siggubær, Bungalowið og Strandstígurinn. Ókeypis aðgangur.
Pakkhúsið, Vesturgötu 8.
Pakkhúsið er aðalsýningarhús Byggðasafnsins og hýsir þrjár sýningar. Ný þemasýning um bíóbæinn Hafnarfjörð, Þannig var… saga Hafnarfjarðar frá landnámi til okkar daga og á efstu hæð hússins er að finna litríka leikfangasýningu fyrir börn og fullorðna.
Sívertsens-hús, Vesturgötu 6.
Sívertsens-húsið er elsta hús bæjarins, byggt á árunum 1803-1805 af Bjarna Sívertsen sem var á sinni tíð mesti athafnamaður í Hafnarfirði, rak útgerð, verslun og skipasmíðastöð í bænum. Í húsinu er að finna margvíslegan fróðleik um Bjarna og fjölskyldu hans.
Beggubúð, Kirkjuvegi 3b.
Í húsinu er verslunarminjasýning Byggðasafnsins. Húsið var byggt sem verslunarhús árið 1906 fyrir verslun Egils Jacobssens. Það stóð áður við Strandgötu aðal verslunargötu bæjarins en var flutt á lóð safnsins, gert upp og opnað sem sýningahús árið 2008.
Siggubær, Kirkjuvegur 10.
Það að koma inn í þetta litla hús er í raun einstök upplifun en Siggubær var byggður árið 1902 og er varðveittur sem sýnishorn af heimili verkamanns eða sjómanns í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar. Við Siggubæ er auk þess opin sýningin Álfar og álfatrú.
Bookless Bungalow, Vesturgötu 32.
Í húsinu er sögu erlendu útgerðarinnar í upphafi 20. aldar gerð skil en húsið sem slíkt er jafnframt einstakur safngripur og var það opnað sem sýningar- og móttökuhús árið 2008 eftir umfangsmiklar endurbætur. Bungalowið var byggt sem íbúðarhús fyrir skosku bræðurna Harry og Douglas Bookless árið 1918 en þeir ráku umfangsmikla útgerð frá Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar. Þeir voru áhrifamiklir og langstærstu atvinnurekendur í bænum um árabil og í húsinu má sjá stássstofu þeirra bræðra.
Strandstígurinn
Á strandstígnum meðfram höfninni í Hafnarfirði er Byggðasafn Hafnarfjarðar með sýningaraðstöðu fyrir ljósmyndasafn sitt. Þar má sjá ljósmyndasýninguna „Hafnarfjörður frá sjónarhóli kvenna“ með ljósmyndum, frá fyrri hluta 20 aldar eftir Sigríði Erlendsdóttur og Ólafíu G. Jónsdóttur.
Sólstöðuhátíð Víkinga við Fjörukránna
13:00 Markaður opnar
13:30 Víkingaskóli barnanna
14:00 Bardagasýning
15:00 Sagnaþulir í hellinum á hótelinu
15:30 Mas-wrestling (planka keflis tog)
15:30 Hljómsveitin Hrafnagaldur spilar
16:00 Bardagasýning
16:30 Bogfimi og axakast
17:00 Hljómsveitin Hrafnagaldur spilar
17:30 Sagnaþulir í hellinum á hótelinu
18:00 Mas-wrestling (planka keflis tog)
18:00 Víkingasveitin spilar
19:00 Bardagasýning
20:00 Lokun markaðar
21:30 Kveðjuathöfn hjá víkingum við eldstæðið
22:30 Kveðjupartý hjá víkingunum
01:00 Lokun
16:00 FH – Haukar í Íþróttahúsinu við Strandgötu
Keppt verður í meistaraflokki karla og kvenna í handbolta. Dómarar verða Bjarni Viggósson og Ægir Örn Sigurgeirsson. Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar sýnir skemmtiatriði í hléi. Kynnir er Helgi Ásgeir Harðarson.
20:00 Kvölddagskrá á Thorsplani
Konubörnin Eygló Hilmarsdóttir og Ebba Katrín Finnsdóttir kynna kvölddagskrá á Thorsplani
20:00 Milkhouse
20:10 Ávarp nýstúdents – Björn Skarphéðinsson
20:15 María Ólafsdóttir flytur „Unbroken“
20:30 Friðrik Dór
21:00 Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson
Samgöngur, umferðarlokanir og hundahald
Miðbærinn verður lokaður fyrir bílaumferð á meðan hátíðarhöldum stendur:
Strandgata: við Lækjargötu
Austurgata: við Linnetstíg
Linnetstígur: við Fjarðargötu og Hverfisgötu 23
Mjósund: við Austurgötu
Bílastæði fatlaðra verða við Linnetstíg 1
Bæjarbúar eru hvattir til að leggja bílum löglega nálægt miðbænum og ganga eða taka strætó á viðburðastaði. Bendum á fjölmörg bílastæði við Lækjarskóla, Iðnskólann, Flensborg, Íþróttahúsið Strandgötu og Víðistaðaskóla.
SKILJUM HUNDANA EFTIR HEIMA
Að gefnu tilefni er bent á að hundum líður betur heima en í mannmergð og fólksfjölda. VINSAMLEGAST ATHUGIÐ AÐ HUNDAR ERU EKKI LEYFÐIR Á VIÐBURÐASTÖÐUM.
Þjóðhátíðarnefnd og framkvæmdanefnd
Matthías Freyr Matthíasson
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir
Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir
Framkvæmdanefnd
Andri Ómarsson
Bára Kristín Þorgrímsdóttir
Geir Bjarnason
Linda Hildur Leifsdóttir