Fundað með bæjarstjóra
Í dag kom Ævar Jóhannesson 10 ára nemi í Lækjarskóla til fundar við Harald bæjarstjóra til að ræða um byggingarleyfi fyrir kofa sem hann og félagar hans vildu reisa í Lárugerði sem er staðsettur fyrir neðan hús KFUMK við Hverfisgötuna.

Ræddu þeir möguleikann að byggja hús í tré í garðinum en á endanum var niðurstaða fundarins sú að byggingarleyfi var gefið út fyrir kofa á lóðinni.
Við óskum þeim félögum góðs gengis í byggingarframkvæmdunum.