Á föstudaginn hefst spurningakeppnin Útsvar í Ríkissjónvarpinu og eru það Hafnarfjörður og Árborg sem stíga fyrst á svið.
Á föstudaginn hefst spurningakeppnin Útsvar í Ríkissjónvarpinu og eru það Hafnarfjörður og Árborg sem stíga fyrst á svið.
Lið okkar er vel þjálfað en þau Guðlaug Kristjánsdóttir, Kristbjörn Gunnarsson og Karl Guðmundsson munu endurtaka leikinn frá því í fyrra
Nú er um að gera að senda liðinu okkar góða strauma og þeir sem vilja geta mætt í sjónvarpssal til að fylgjast með og hvetja þau til dáða.
Áfram Hafnarfjörður.