Húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk til 2038 samþykkt samhljóða

Fréttir

Húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk til ársins 2038 hefur verið samþykkt samhljóða í bæjarstjórn. Stefnt er að því að fjölga félagslegum íbúðum um 22 og byggja fjóra kjarna með sólarhringsþjónustu.

Húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk samþykkt 

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykk samhljóða húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk allt til ársins 2038. Valdimar Víðisson bæjarstjóri leggur áherslu á að áætlunin sé lykilforsenda þess að hægt sé að tryggja fötluðu fólki öruggt og viðeigandi húsnæði til framtíðar með auknum fyrirsjáanleika bæði fyrir notendur og sveitarfélagið í heild.

Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að íbúum fjölgi um 30% í Hafnarfirði á næstu tíu árum og verði yfir 40 þúsund á árinu 2036. Gert er ráð fyrir 26 nýjum umsóknum um sérstakt húsnæði / utankjarnaþjónustu til ársins 2036.

Stefnt er að því að byggja eða kaupa 22 félagslegar íbúðir og fjórir kjarnar með sólarhringsþjónustu verða byggðir.

  • Smyrlahraun 41
    • 6 íbúðir til útleigu
    • Verður tekin í notkun á árinu 2027
  • Öldugata 47
    • 7 íbúðir til útleigu
    • Stefnt á að taka í notkun á árinu 2029
  • Ásland 4
    • 7 íbúðir til útleigu
    • Stefnt á að taka í notkun á árinu 2031
  • Kjarni
    • 7 íbúðir til útleigu
    • Stefnt á að taka í notkun á árinu 2037

Áætlunin er mikilvægur áfangi í áframhaldandi uppbyggingu á þjónustu við fatlað fólk og skýra yfirlýsingu um þann metnað sem Hafnarfjörður vill sýna þessum málaflokki.

  • Sjáðu málið í bæjarstjórn hér

Húsnæðisáætlun var lögð fram til kynningar og umsagnar á fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks þann 21. apríl síðastliðinn. Þar var eftirfarandi bókun gerð:

„Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks fagnar því að Hafnarfjarðarbær hafi gert húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk fyrir árin 2026 – 2038, að fötluðu fólki sé tryggt öruggt húsnæði og að fyrirsjáanleiki verði enn meiri en verið hefur. Samráðshópurinn vill að boðið verði ávallt upp á fjölbreytt úrræði/heimili sem eru á forsendum notenda enda sé fatlað fólk með ólíkar þarfir og væntingar eins og aðrir í samfélaginu.“

Af hverju þurfum við húsnæðisáætlun?

  • Mannréttindi fyrir fullorðið fatlað fólk að geta búið á eigin heimili
  • Mikilvægt fyrir aðstandendur að vita hvað tekur við eftir að börnin þeirra verða fullorðin
  • Fyrirsjáanleiki fyrir notendur, aðstandendur,  starfsmenn og þjónustukerfið í heild
  • Betri nýting á fjármagni í málaflokknum

 

 

 

 

Ábendingagátt