42% Svansvottaðra íbúða í Hafnarfirði

Fréttir

Flestar Svansvottaðar íbúðir eru staðsettar í Hafnarfirði, samkvæmt tölum Umhverfis- og orkustofnunar. Af 1.050 Svansvottuðum íbúðareiningum eru 444 í Hafnarfirði eða 42%. MótX með nýjustu vottunina í Hamranesi.

Mikið úrval Svansvottaðra íbúða hér í bæ

Flestar Svansvottaðar íbúðir eru staðsettar í Hafnarfirði, samkvæmt tölum Umhverfis- og orkustofnunar. Af 1.050 Svansvottuðum íbúðareiningum eru 444 í Hafnarfirði eða 42%.

Stofnunin afhenti byggingarfyrirtækinu MótX viðurkenningu til staðfestingar á Svansvottun á þriðja hluta Hringhamars 9-19 í Hafnarfirði, Hringhamri 17-19 á dögunum. Þar með er lokið við að Svansvotta allar 118 íbúðirnar í þremur húsum þeirra. Verkefnið er eitt stærsta byggingaverkefni í flokki fjölbýlishúsa sem að fengið hefur Svansvottun hér á Íslandi.

Góð staða í Hafnarfirði

G. Lilja Ólafsdóttir, sérfræðingur í teymi hringrásarkerfisins hjá stofnuninni, segir hátt í 700 íbúðir í Hafnarfirði ýmist í Svansvottunarferli eða komnar með vottun. Hún sé virkilega ánægð með stöðuna í Hafnarfirði þegar kemur að Svansvottun.

„Staðan sýnir vel hversu mikilvægt það er að sveitarfélög bjóði uppá ívilnanir og fjárhagslega hvata fyrir umhverfisvottanir. Afslátturinn sem Hafnarfjörður veitir af lóða- og gatnagerðargjöldum hefur hjálpað til við að mæta þeim kostnaði sem fylgir vottunarferlinu og þannig hvatt fleiri aðila til að fara í umhverfisvottun,“ segir hún.“

„Þessi þróun hefur líka stuðlað að aukinni þekkingu á vistvænni mannvirkjagerð. Sífellt fleiri verktakar og hönnuðir þekkja nú ferlið betur, sem auðveldar innleiðingu umhverfisvænna lausna og styrkir fagþekkingu á sviðinu í heild.“

Horft til framtíðar

Valdimar Víðisson bæjarstjóri segir mikilvægt að horfa til framtíðar þegar kemur að hýbýlum hafnfirskra fjölskyldna. Hann sé stoltur af því hversu vel hefur tekist til að byggja umhverfisvænt í Hafnarfirði. „Það eru aukin lífsgæði að geta búið í heilsusamlegu húsnæði og eftirsóknarvert. Það er frábært að sjá hvað byggingarverktakar hafa tekið vel við sér og breytt vinnulagi sínu til að mæta þessum kröfum.“

Svanur Karl Grjetarsson, framkvæmdastjóri MótX, segir stuðning og hvatningu Hafnarfjarðarbæjarins hafa verið ómetanlegur á Svansvottunarvegferð MótX.

Byggt með ábyrgum hætti

„Við erum afar stolt af því að fá Svansvottun á þetta húsnæði. Hún staðfestir að við séum að byggja með ábyrgum hætti, bæði gagnvart umhverfinu og þeim sem munu búa í íbúðunum.“ Ákvörðunin um að fara þessa leið hafi verið tekin snemma í ferlinu.

„Við vildum tryggja að verkefnið uppfyllti ströngustu kröfur um sjálfbærni. Það snýst ekki aðeins um umhverfið heldur einnig um gæði bygginganna og heilnæmt íbúðarumhverfi.“

Þetta er ekki fyrsta Svansvottun MótX og fleiri í bígerð. „Við erum með fleiri í byggingu sem stefna á slíka vottun. Þetta er leið sem við ætlum að halda áfram að fara,“ segir hann.

Svansvottun Norðurlandanna er umhverfismerki sem tekur til alls lífsferils bygginga – frá hönnun og efnisvali til reksturs og viðhalds. Með vottuninni er tryggt að byggingarnar uppfylli kröfur um minni kolefnisspor, betri orkunýtingu og aukna velferð íbúa.

 

Mynd: Þröstur Már Sigurðsson gæðastjóri MótX, Svanur Karl Grjetarsson, framkvæmdastjóri, Valdimar Víðisson bæjarstjóri og G. Lilja Ólafsdóttir frá Umhverfis- og orkustofnun.

 

Ábendingagátt