Kór Öldutúnsskóla fagnar 60 árum með stórtónleikum

Fréttir

Yfir 100 mans stíga á svið í Hörpu þegar kór Öldutúnsskóla heldur stórtónleika í tilefni af 60 ára samfleyttu starfsafmæli sínu. Fyrrum og núverandi kórfélagar koma fram. Tónleikarnir verða sunnudaginn 24. maí næstkomandi klukkan 16.

Kór Öldutúnsskóla 60 ára

Yfir 100 núverandi og fyrrverandi kórfélagar stíga á svið í Hörpu á stórtónleikum kórs Öldutúnsskóla í Hörpu 24. maí. Kórinn er elsti starfandi barnakór landsins. Egill Friðleifsson stofnandi kórsins var frumkvöðull í metnaðarfullu kórstari með börnum. Brynhildur Auðbjargardóttir tók svo við kórnum árið 2005 en hún söng einmitt sjálf í kórnum – í áratug.

„Það höfðu ekki verið gerðar svona miklar kröfur til barnakóra á Íslandi áður en Egill tók við. Þá sópast börn að enda aðrir tímar og ekki mikið um að vera hjá krökkum. Þá var mikið æft, þrisvar á viku og á sumrin. Hann opnaði fyrir okkur nýjan heim með tónlistinni.“

Mörg koma fram með kórnum

Margrét Eir, Guðrún Árný, Hanna Björk Guðjónsdóttir og dóttir hennar Björg Birgisdóttir, systkinin Ívar, Pálín Dögg og Thelma Hlín Helgabörn, dóttir Ívars Erla Mist Magnúsdóttir, Erla Jónatansdóttir, Steiney Einarsdóttir dóttir Pálínar Daggar og Sigríður Tinna Bjarnadóttir koma

Brynhildur lýsir því þegar hún sjálf hóf þátttöku í kórastarfinu. „Ég flyt til Hafnarfjarðar þegar ég er sjö ára gömul. Þá spyrja mig allir hvort ég ætli ekki í kórinn. Ég hugsa: Hvað er það? Jú, jú, var svo svarið. Þá var inntökupróf og ég byrja í kórnum átta ára og er til átján ára aldurs. Ég elska kórstarf og syng ennþá í kór,“ segir hún og lýsir ferðum erlendis og stífum æfingum oft í viku og á sumrin.

„Við kynntumst ólíkum tónverkum sem við hefðum ekki aðgang að. Fórum til Kína, Ástralíu, út um allt,“ segir Brynhildur í aðdraganda þessara stórtónleika. Nú eigi kórastarf undir högg að sækja.

Kórar auka samhygð

„Krakkar eru í mörgum tónstundum, þau fara til útlanda með foreldrum sínum, eru meiri heimsborgarar en við vorum.“ Kórastarfið sé í baráttu við íþróttir.

„Kórastarfið tapar,“ segir Brynhildur en börnin læri svo mikið af kórastarfi. „Þetta er allt önnur vinna en börnin eru vön og samhygin kviknar með söngnum. Það verður svo mikil vinátta,“ segir hún.

En hvað verður sungið? „Uppáhaldslög kórfélaga í gegnum tíðina,“ segir hún. Börnin hafi til að mynda fengið að koma með uppástungur. „Það kom mér á óvart hvað þau völdu mikið af hugljúfum lögum,“ segir hún. En rúsínan í pylsuendanum sé þó nýtt tónverk.

„Við frumflytjum eitt nýtt lag eftir Finn Karlsson, tónskáld, sem hefur skrifað mikið fyrir kóra.“

Stífar æfingar standa nú yfir. Þegar fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar leit við á dögunum æfði kórinn tvær perlur sem Björgvin Halldórsson okkar söng svo fallega.

 

Ábendingagátt