Skellum okkur í sund um páskana! Opið er í sundlaugum Hafnarfjarðar páskadagana að undanskyldum Föstudeginum langa og Páskadegi.
Það ættu allir að geta fundið tíma til að skella sér í sund um páskana. Ekki verður opið í Sundhöll Hafnarfjarðar en opnunartími í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug er sem hér segir.
- Skírdagur 24.mars, opið frá kl. 8.00 – 17.00
- Föstudagurinn langi 25.mars – LOKAÐ
- Laugardagur 26.mars, opið frá kl. 08.00 – 18.00
- Páskadagur 27.mars – LOKAÐ
- Mánudagur 28.mars – 2. í páskum, opið frá kl. 08.00 –
17.00
Höfum það gaman saman…….í sundi um páskana.