Niður með grímuna
Ungt fólk og lýðræði ráðstefna Ungmennafélags Íslands var haldin í sjöunda sinn á Selfossi um miðjan mars. Ráðstefnan í ár snéri að geðheilsu ungmenna á Íslandi. Tveir fulltrúar úr Ungmennaráði Hafnarfjarðar sóttu viðburðinn.
Tveir fulltrúar úr Ungmennaráði Hafnarfjarðar, Lára Rós
Friðriksdóttir og Katrín Rós Þrastardóttir, skelltu sér á ráðstefnu Ungmennaráðs
Ungmennafélags Íslands dagana 16.-18. mars. Ráðstefnan var haldin á Hótel
Selfossi og var yfirskrift ráðstefnunnar í ár: Niður með grímuna – geðheilsa
ungmenna á Íslandi. Þetta er í sjöunda sinn sem Ungmennafélag Íslands stendur
fyrir ráðstefnunni, Ungt fólk og lýðræði með það að markmiði að styðja við
lýðræðislega þátttöku ungs fólks.
Á ráðstefnunni var greint frá stöðu
geðheilbrigðismála á Íslandi m.a. með góðu erindi frá Kvíðameðferðarstöðinni. Megin
áhersla var þó lögð í vinnu ungmenna í hinum ýmsum málstofum sem unnið var í báða dagana. Þátttakendum á ráðstefnu stóð til boða að taka þátt í eftirfarandi málstofum:
- Tilfinningasmiðja
- Sjálfsmynd stráka
- Sjálfsmynd stelpna
- Fordómar og
fjölbreytileiki - Áhrif samfélagsmiðla
- Geðræktarkassinn
Einnig voru í
boði vinnusmiðjur þar sem leitast var eftir að finna tíu gagnleg og hjálpleg ráð frá unga fólkinu sjálfu sem koma að góðum notum í vanlíðan. Málstofa um ungt fólk og
samfélagið var síðan til þess fallin að draga saman þá vinnu sem átti sér stað í vinnustofunum auk þess sem gott samtal um geðheilbrigði í framhaldsskólum átti sér stað þar sem hópurinn leitaðist
eftir því að koma með hugmyndir um hvernig geðheilbrigðisstefna fyrir framhaldskólanemendur væri æskileg.
Fulltrúar UMH tóku virkan þátt í ráðstefnunni og fóru heim í Hafnarfjörðinn með ný
verkfæri til að nýta í vinnu sinni með ungu fólki bæði í leik og starfi.