Forskráning í skólagarða
Í sumar eiga börn á aldrinum 7 – 12 ára forgang í skólagarða Hafnarfjarðarbæjar. Skráning hófst á Sumardaginn fyrsta og lýkur 14. maí. Eftir þann tíma gefst öllum öðrum sem hafa lögheimili í Hafnarfirði kost á að leigja sér garð.
Í sumar eiga börn á
aldrinum 7 – 12 ára (fædd 2004-2009) forgang í að skrá sig í skólagarða Hafnarfjarðarbæjar. Skráning hófst á Sumardaginn fyrsta og lýkur 14. maí. Eftir þann tíma gefst
öllum öðrum sem hafa lögheimili í Hafnarfirði kost á að leigja sér garð.
Skólagarðarnir eru á
eftirfarandi stöðum:
- Á Víðistöðum s. 664-5769
- Efst á Öldugötu s. 664-5772
- Neðan við Lyngbarð s. 664-5770
- Í Mosahlíð s. 664-5733
- Vellir 664-5733
Þátttökugjald kr. 4.600..- Veittur er 50% systkinaafsláttur. Hver og einn fær úthlutað tveimur reitum, einn reit fyrir grænmeti og annan fyrir kartöflur. Kartöflur og grænmeti er innifalið í verði fyrir alla.
Opnunartími garða í sumar
Dagana 1. – 8. júní verða garðarnir opnir
frá 13.00-17.00. Frá 9.- 22. júní verða garðarnir opnir frá kl. 08.30-12.00 og 13:00 – 16:30. Frá 23. júní – 12. ágúst verða garðarnir svo opnir frá 10:00 – 15:00. Þessir tímar eru settir fram með fyrirvara um breyttan opnunartíma.
Uppskerudagur í ágúst
Föstudaginn 12. ágúst verður uppskerudagur í Skólagörðunum og þá
verður opið frá kl. 13:00 – 18:00. Þann dag eru allir foreldrar/forráðamenn hvattir til að mæta með börnum sínum með
poka eða kassa fyrir alla uppskeruna.
Skráning á MÍNUM SÍÐUM – skráning á
sumarnámskeið 2016. Vinsamlega athugið – á MÍNUM SÍÐUM er aðeins hægt að greiða með kreditkorti en hægt er að staðgreiða skráningu í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 6.