17. júní í miðbæ Hafnarfjarðar
Mikil veisla verður í boði í Hafnarfirði á 17. júní, veisla sem teygir anga sína víða um bæinn. Skipulögð dagskrá verður á Thorsplani, við Hafnarborg og Byggðasafn Hafnarfjarðar.
Gleðilega þjóðhátíð í Hafnarfirði – þjóðhátíðardagurinn
Dagskrá á þjóðhátíðardegi
- Kl. 8:00 Fánar dregnir að húni og fánahylling. Skátafélagið Hraunbúar flaggar fánum víðsvegar um bæinn.
- Kl. 11:00 Þjóðbúningasamkoma í Flensborg. Annríki – Þjóðbúningar og skart veitir aðstoð við að klæðast þjóðbúningum og hvetur Hafnfirðinga til að taka fram þjóðbúninga allra landa.
- Kl. 13:00 Skrúðganga frá Hamrinum að Thorsplani. Gengið niður Hringbraut í átt að Læknum, beygt inn Lækjargötu og Strandgötu að Thorsplani. Lúðrasveit Hafnarfjarðar og skátafélagið Hraunbúar leiða skrúðgönguna
- Kl. 13:30 – 16:30 Hátíðarhöld á Thorsplani
- Kl. 14:00 – 16:00 Skemmtidagskrá við Hafnarborg
- Kl. 14:00 – 16:00 Skemmtidagskrá við Byggðasafn Hafnarfjarðar
Hátíðarhöld á Thorsplani
- Kl. 13:30 Karlakórinn Þrestir, ávarp fjallkonu Elínar Fanneyjar Ólafsdóttur, setning forseta bæjarstjórnar Guðlaugar Kristjánsdóttur, ávarp nýstúdents Benedikts Arnars Þorvaldssonar
- Kl. 14:00 Lína langsokkur
- Kl. 14:30 Sylvía Erla Melsted ásamt dönsurum
- Kl. 14:45 Rimmugýgur
- Kl. 15:00 Dansatriði frá dansskólanum Arabesque
- Kl. 15:10 Árni Svavar og hljómsveit
- Kl. 15:30 Brynjar Dagur (Iceland Got Talent)
- Kl. 15:45 Ragnar Bjarnason og Eyþór Ingi taka lagið saman
- Kl. 15:50 Eyþór Ingi og hljómsveit
Kynnar eru Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir og Sigyn Blöndal úr Krakkafréttum.
Dagskrá á Strandgötu, stræti og torg
- Sölubásar, leiktæki, skotbakkar, þrautabraut, andlitsmálun og loftboltar
- Margrét og Birkir Blær – Harmonikku og saxafón dúett
- Kaffisala skáta í og við húsnæði Rauða krossins við Thorsplan
- Skapandi sumarstörf verða á ferðinni
Dagskrá á og við Ráðhústorg
- Leiktæki
- Borðtennisdeild BH
- Bókabíllinn
- Bréfdúfusýning
- Hljómsveitakeppnin Bæjarbandið í Bæjarbíói
Austurgötuhátíð
- Íbúar Austurgötu bjóða Hafnfirðinga og nærsveitarmenn velkomna á Austurgötuna
- Siglingaklúbburinn Þytur verður með báta og kajaka á Læknum
- Teymt undir börnum á hestum frá Hestamannafélaginu Sörla við gamla Lækjarskóla
Ásvellir og Vallahverfi
- Kl. 10:00 – 18:00 Fjör og hvatning við endamark WOW Cyclothon á svæðinu til móts við Steinhellu á Völlunum
- Kl. 17:00 FH – Haukar. Keppt verður í meistaraflokki karla og kvenna í handbolta.Dómarar verða Bjarni Viggósson og Sigurður Hjartarson. Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar sýnir skemmtiatriði í hléi. Kynnir er Helgi Ásgeir Harðarson
Skemmtidagskrá við Hafnarborg
- Kl. 14:00 Hljómsveitin Marinarás
- Kl. 14:00 Listasmiðja í Hafnarborg. Smiðja fyrir bæði unga sem aldna sem tekur mið af sumarsýningu Hafnarborgar: Ummerki vatns. Verður haldin utandyra ef veður leyfir
- Kl. 14:20 Línudans eldri borgara
- Kl. 14:35 Margrét og Birkir Blær – Harmonikku og saxafón dúett
- Kl. 15:00 Skylmingadeild FH
- Kl. 15:30 Línudans eldri borgara
Kvartmíluklúbburinn sýnir bíla og Mótorhjólaklúbburinn Gaflarar sýna mótorhjól fyrir framan Hafnarborg. Opið í Hafnarborg frá kl. 12-17 (ókeypis aðgangur). Sumarsýning Hafnarborgar að þessu sinni er samsýning sex listamanna sem eiga það sameiginlegt að styðjast við ummerki vatns í verkum sínum – sýningin Ummerki vatns. Litur, vatn og uppgufun þess er kjarni hugmyndarinnar – hver eru ummerkin eftir umbreytinguna? Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru þau Anna Rún Tryggvadóttir, Florence Lam, Harpa Árnadóttir, Hulda Stefánsdóttir, John Zurier og Margrét H. Blöndal. Sýningarstjórar eru Ágústa Kristófersdóttir og Birgir Snæbjörn Birgisson.
Skemmtidagskrá við Byggðasafn Hafnarfjarðar
- Kl. 14:00 Listdansskóli
- Kl. 14:30 Arabesquedans frá SH
- Kl. 15:00 Hljómsveitin Marinarás
Hestakerra ekur börnum um svæðið. Byggðasafn Hafnarfjarðar er lifandi og fróðlegt safn fyrir alla fjölskylduna sem opið er frá kl. 11:00-17:00 í sex húsum auk ljósmyndasýningar á Strandstíg. Aðgangur er ókeypis
- Pakkhúsið, Vesturgötu 8. Aðalsýningarhús Byggðasafns og hýsir þrjár sýningar. Þemasýningu um bíóbæinn Hafnarfjörð, Þannig var… saga Hafnarfjarðar frá landnámi til okkar daga og á efstu hæð hússins er að finna litríka leikfangasýningu fyrir börn og fullorðna.
- Sívertsens-hús, Vesturgötu 6. Húsið er elsta hús bæjarins, byggt á árunum 1803-1805 af Bjarna Sívertsen sem var á sinni tíð mesti athafnamaður í Hafnarfirði, rak útgerð, verslun og skipasmíðastöð í bænum. Í húsinu er að finna margvíslegan fróðleik um Bjarna og fjölskyldu hans.
- Beggubúð, Kirkjuvegi 3b. Í húsinu er verslunarminjasýning Byggðasafnsins. Húsið var byggt sem verslunarhús árið 1906 fyrir verslun Egils Jacobssens. Það stóð áður við Strandgötu en var flutt á lóð safnsins, gert upp og opnað sem sýningahús árið 2008.
- Siggubær, Kirkjuvegur 10. Það að koma inn í þetta litla hús er í raun einstök upplifun en Siggubær var byggður árið 1902 og er varðveittur sem sýnishorn af heimili verkamanns eða sjómanns í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar. Við Siggubæ er auk þess opin sýningin „Álfar og álfatrú“.
- Bookless Bungalow, Vesturgötu 32. Bungalowið var byggt sem íbúðarhús fyrir skosku bræðurna Harry og Douglas Bookless árið 1918 en þeir ráku umfangsmikla útgerð frá Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar. Í húsinu er sögu erlendu útgerðarinnar frá fyrri hluta 20. aldar í Hafnarfirði gerð skil en húsið sem slíkt er jafnframt einstakur safngripur.
- Gúttó, Suðurgötu 7. Í Góðtemplarahúsinu hefur Byggðasafn Hafnarfjarðar sett upp sýninguna „Gúttó – Hús templara, vagga félags- og menningarlífs í 130 ár“ þar sem ljósi er varpað á sögu Góðtemplarareglunnar í Hafnarfirði og því mikla félags- og menningarstarfi sem fram hefur farið í húsinu í gegnum tíðina.
- Strandstígurinn. Á strandstígnum meðfram höfninni í Hafnarfirði er Byggðasafn Hafnarfjarðar með sýningaraðstöðu fyrir ljósmyndasafn sitt. Þar má sjá nýja ljósmyndasýningu sem á eru ljósmyndir eftir áhugaljósmyndarann Ásgeir Kr. Sörensen af daglegu lífi Hafnfirðinga um miðja 20. öld. Á sýningunni eru 60 ljósmyndir og nær hún allt frá Fjörukrá og vestur út Herjólfsgötu.
Annað í gangi
- Kl. 12:00-18:00 Opið hús í Hjólabrettahöllinni á Flatahrauni hjá Brettafélaginu – frítt inn
- Ragnar Bjarnason heimsækir sjúkrastofnanir ásamt undirleikara og heldur tónleika.
- Sólstöðuhátíð Víkinga verður um daginn við Fjörukránna
- Fríkirkjan verður með opið hús
Samgöngur og umferðarlokanir
Miðbærinn verður lokaður fyrir bílaumferð á meðan hátíðarhöldum stendur:
- Strandgata og Austurgata: við Lækjargötu
- Linnetstígur: við Fjarðargötu og Hverfisgötu 23
- Mjósund: við Austurgötu
- Bílastæði fatlaðra við Linnetstíg 1
Bæjarbúar eru hvattir til að leggja bílum löglega nálægt miðbænum og ganga eða taka strætó á viðburðastaði. Bendum á fjölmörg bílastæði við Lækjarskóla, Iðnskólann, Flensborg, Íþróttahúsið Strandgötu og Víðistaðaskóla. Að gefnu tilefni er bent á að hundum líður betur heima en í mannmergð og fólksfjölda. ATH….Hundar eru EKKI LEYFÐIR á viðburðastöðum.