Aftur til vinnu með þátttöku þinni
Hafnarfjarðarbær leitar að starfi fyrir einstaklinga sem eru tilbúnir að stíga aftur út á vinnumarkað. Leitað er að allt að 70% starfi.
Aftur til virkni og vinnu
Hafnarfjarðarbær leitar að starfi fyrir einstaklinga sem eru tilbúnir að stíga aftur út á vinnumarkað. Leitað er að allt að 70% starfi.
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðarbæjar hefur biðlað til stjórnenda Hafnarfjarðarbæjar að hafa augun opin fyrir tækifærum hjá bænum en leitar nú einnig til atvinnulífsins.
Markmiðið er að geta boðið einstaklingum upp á meiri sveigjanleika við að virkja hæfileika sína og getu. Einnig að skapa raunhæf tækifæri til innkomu eða endurkomu á vinnumarkað. Meginreglan er vinna eða virkni í stað bóta.
En hvernig virkar þetta? Vinnuveitandi greiðir viðkomandi atvinnuleitanda laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings og Fjölskyldu-og barnamálasvið skuldbindur sig til að greiða stofnstyrk vegna ráðningar starfsmanns að upphæð 265.271- kr. á mánuði í allt að sex mánuði.
Samningur er gerður á grundvelli samstarfs sveitarfélagsins og Vinnumálastofnunar um ráðningar og þjónustu við atvinnuleitendur án bótaréttar hjá Atvinnuleysistryggingasjóði.
Já, þetta er kjörið tækifæri til að fá vinnuviljuga einstaklinga, valdefla þá um leið og þeim er greidd leið aftur út á vinnumarkaðinn. Þetta er tækifæri til að fá hendur í verk sem hafa beðið, stækka starfsemina og ná saman árangri.
- Nánari upplýsingar: namogstarf@hafnarfjordur.is